Vignir Vatnar Stefánsson var eins og oft áður í stuði síðastliðinn laugardag en þá fór í enda mánaðar fram febrúarmót VignirVatnar.is X Snóker og Pool. Vignir er í samstarfi við þennan skemmtilega stað og þarna hafa verið haldin mörg skemmtileg hraðskákmót. Eins og oft áður vann Vignir eigið mót, fékk 9 vinninga af 9 mögulegum og er kominn skemmtilega yfir 2600 elóstiga-múrinn í hraðskák. Vignir er auk þess enn ósigraður í nýja frakkanum frá Kölska!!

Yfirburðir Vignis miklir skiljanlega en í öðru sæti varð Dagur Ragnarsson með 7,5 vinning. Dagur yfirleitt traustur á þessum hraðskákmótum.

Hilmir Freyr endaði í 3. sæti en hann fékk 6,5 vinning og voru þessir þrír í nokkrum sérflokki.

Lenka tók kvennaverðlaunin, ekki í fyrsta skipti og ekki það síðasta!



Kjartan Ragnars var svo efstur stigalausra.
Nánari úrslit er hægt að nálgast á chess-results.
Nokkrar myndir frá mótinu:





















