FIDE birti ný alþjóðleg skákstig í dag. Auðunn Haraldsson hækkaði mest og Vestmannaeyingar voru duglegir að tefla.

Stigahæstu skákmenn og konur

Vignir Vatnar Stefánsson (2511) er stigahæstur íslenskra skákmanna og Olga Prudykova (2271) stigahæst skákkvenna. Litlar breytingar urðu á topp 20 listunum.

Ungir og gamlir

Benedikt Briem (2233) er stigahæstur ungra skákmanna. Markús Orri Óskarsson (2049) tók stökk úr 8. sæti upp í 3. með flottum árangri í mánuðinum.

Héðinn Steingrímsson (2502) er stigahæstur á vizkualdrinum en baráttan harðnar um annað sætið en munurinn á Jóhanni Hjartarsyni (2479) og Henrik Danielssyni (2476) minnkaði úr 12 niður í 3 stig milli mánaða.

Breytingar

Auðunn Haraldsson (1859) var jafn efstur á skákþingi Vestmannaeyja og það skilaði honum mestri hækkun í mánuðinum. Áðurnefndur Markús Orri og Pétur Úlfar Ernisson (1738) komu þar á eftir.

Flestar skákir

Ólafur Hlynur Guðmarsson (1965) heldur áfram að vera virkur á Jótlandi og tefldi rúmlega annan hvern dag í febrúar og Guðrún Fanney Briem (1993) tefldi 10 skákir.

 

Nýir á lista

Þrír skákmenn koma nýir á lista í mánuðinum. Jónatan Leó Daðason með 1649 stig, Timothy Murphy með 1533 og Björn Askur Þorbjargarson með 1523.

- Auglýsing -