Bárður Örn Birkisson er stjarnan það sem af er á Alþjóðlega Kópavogsmótinu – Ungir Meistarar en hann vann sína þriðju skák í röð á mótinu en fjórða umferð fór fram í dag. Litlu munaði að Vignir næði einnig í sinn þriðja sigur í röð en honum brást bogalistin í endataflinu eftir annars góða skák. Litháinn Paulius Pultinevicius hefur byrjað mótið einstaklega vel, hefur fullt hús eftir fjórar umferðir en svo kemur Bárður einn í 2. sæti.
Bárður Örn Birkisson – Hilmir Freyr Heimisson
Bárður og Hilmir voru báðir í ágætis áfangasénsum fyrir þessa skák og úr varð nokkuð þétt dýnamísk barátta. Bárður hélt lengst af nokkuð vel á spöðunum en í gagnkvæmu tímahraki gaf Hilmir skiptamun í stöðu sem tölvurnar telja í dýnamísku jafnvægi.
Valdajafnvægið komið til hvíts eftir 35…Hxd5? og má segja að Bárður hafi aldrei sleppt takinu eftir þetta.
Vignir Vatnar Stefánsson – Valery Kazakouski
Vignir hefði átt að ná sinni þriðju vinningsskák í röð eftir ansi vel útfærða skák gegn hinum sterka Litháa, Valery Kazakouski. Vignir náði að setja jafna og þétta pressu á andstæðing sinn og tefla upp á tvö úrslit…eitthvað sem menn stefna oft á þ.e. að tefla til sigurs en klikki það endar skákin sem jafntefli.
Eftir mjög vel heppnað endatafl stóð Vignir til sigurs en missti af einhverju á ögurstundu. 81.Bxc5?? var nóg til að Litháinn næði jafntefli, riddaraþráskákinn sem kom í kjölfarið er pirrandi og leiðinleg. Hefði Vignir leiið 81.Bg3 er vinningurinn orðinn nokkuð auðsóttur. T.d. eftir 81…f2 82.Bg2 mun hvítur fljótt ná að rýma fyrir a-peðinu.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson – Birkir Ísak Jóhannsson
Birkir Ísak náði sér loks í sigur eftir brösugt gengi í undanförnum skákum. Þriðji leikur svarts 3…a5!? með einni mestu „yfirmenntun“ sem undirritaður hefur séð í byrjanataflmennsku. Áfangamöguleikar Aleksandrs eru algjörlega úr sögunni eftir þennan ósigur.
Paulius Pultinevicius – Dagur Ragnarsson
Paulius virtist hafa tögl og haldir gegn Degi lengst af tafli en 24. leikur hvíts breytti flæðinu. Í kjölfarið hófst mikill baráttukafli þar sem ójafnvægi var í skákinni en tölvumatið fór aldrei langt frá núllinu.
Það var ekki fyrr en í 71. leik sem Dagur missti þráðinn.
71…Da7?? var tapleikurinn, hvítur skákar á e8 og skiptir upp á d7.
Mikhaeylo Oleksiyenko – Jaime Santos Latasa
Úkraínumaðurinn Oleksiyenko náði að hrista aðeins upp í toppbaráttunni og jafnar sig strax á tapinu gegn Bárði frá því í gær. Spánverjinn Santos Latasa, stigahæsti keppandinn, hefur varla tapað skák á Íslandi frá því hann mætti hér í fyrra að tefla með Íslandsmeistaraliði Vestmannaeyja. Það breyttist loks í kvöld.
Skákin var að mörgu leiti athyglisverð. Oleksieynko náði að véla peð af Spánverjanum en á borðinu voru mislitir biskupar og töluverðir jafnteflismöguleikar tengdir því. Oleksiyeno hélt hinsvegar vel á spöðunum og kláraði endataflið laglega!
Úrslit umferðarinnar:
Enn einu sinni bara eitt jafntefli í umferðinni. Paulius á góðri siglingu en Oleksieynko lamaði aðeins möguleika Latasa í toppbaráttunni. Synd að Vignir hafi ekki náð að klára góða skák.
Staðan:

Paulius með fultt hús og Bárður óvænt í öðru sæti.
Næsta umferð:
Mótið heldur áfram á morgun Stúkunni í Kópavoginum en skákirnar hefjast sem fyrr 15:00. Bárður hefur svart gegn Birki Ísak, sigur þar fleytir honum langleiðina í áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Vignir tapaði síðustu helgi með svörtu gegn Latasa í deildakeppninni og vill vafalítið koma fram hefndum.
Skákdeild Breiðabliks í samstarfi við Helga Ólafsson á mikið hrós skilið fyrir mótahaldið en mót af þessu tagi hefur sárlega vantað fyrir íslenska titilveiðara undanfarin ár. Sigtryggssjóður kom jafnframt sterkur inn í þetta verkefni!

- Skákir á lichess
- Skákir á chess.com
- Mótið á Chess-Results
- Myndir frá mótinu ->
Almennar upplýsingar um mótið:
Staðsetning Glersalurinn á þriðju hæð stúkunnar við Kópavogsvöll. Kaffi og veitingar verða á staðnum.
Dagskrá (9 umferðir, einn hvíldardagur)
Þriðjudagur, 10. mars, kl. 15:00 – Opnunarathöfn og 1. umferðMiðvikudagur, 11. mars, kl. 15:00 – 2. umferðFimmtudagur, 12. mars, kl. 15:00 – 3. umferðFöstudagur, 13. mars, kl. 15:00 – 4. umferð- Laugardagur, 14. mars, kl. 15:00 – 5. umferð
- Sunnudagur, 15. mars, kl. 15:00 – 6. umferð
- Mánudagur, 16. mars – Hvíldardagur
- Þriðjudagur, 17. mars, kl. 15:00 – 7. umferð
- Miðvikudagur, 18. mars, kl. 15:00 – 8. umferð
- Fimmtudagur, 19. mars, kl. 11:00 – 9. umferð
- Fimmtudagur, 19. mars, kl. 16:00 – Lokaathöfn
Keppendur
Meðalstig keppenda er 2432 skákstig og er stigahæsti skákmaður mótsins Jaime Santos Latasa sem varð Íslandsmeistari með Vestmannaeyingum um helgina. Í raun eru fjórir fyrstaborðsmenn úr keppninni með, þeirra á meðal Vignir Vatnar Stefánsson sem fer fyrir heimavarnarliðinu. Aðrir Íslendingar eru flestir titilveiðarar, menn sem gera sér vonir um annaðhvort áfanga að alþjóðlegum meistaratitli eða stórmeistaratitli.
Frekari upplýsingar:
- https://www.kopavogurinternational.is/
- https://www.kopavogurinternational.is/schedule
- https://www.kopavogurinternational.is/blog/categories/players


















