Sigursveit Rimaskóla

Þann 14.mars fór Íslandsmeistaramót barnaskólasveita 1-3 bekkjar fram. Mótið gekk hratt og örugglega fyrir sig og var haldið við góðar aðstæður í íþróttahúsi Rimaskóla. Að þessu sinni tóku þátt 21.sveit.

Stærsta hluta mótsins var það A-sveit Hvaleyrarskóla sem leiddi mótið en það var ekki fyrr en í næst síðustu umferð sem liðið laut í lægra haldi gegn Reykjavíkurmeisturum A-sveit Landakotsskóla.

Í loka umferðinni leiddi a-sveit Rimaskóla en strax á eftir þeim kom a-sveit Landakotsskóli með hálfum vinning minna. Þremur vikum áður hafði Reyjavíkurmót barnsskóla farið fram og þá voru einnig þessar sveitir sem leiddu hesta sína um baráttu sína um efstu sætið. Höfðu sveitirnar gert 2-2 jafntefli innbyrðis í sinni viðureign í fjórðu umferð. Í lokaumferðinni unnu báðar sveitir sínar viðureignir með fullu húsi og Rimaskóli endaði efst sveita með 22½ vinning. Hart var barist um þriðja sætið í mótinu og komu Hvaleyraskóli A-sveit ásamt Vesturbæjarskóla A-sveit jafnar með 19½ vinning en sveit Hvaleyraskóla reyndist stigahærri eftir stigaútreikning. Forseti Skáksambandins Jóhanna Björg kom og veitti verðlaunin

🥇Rimaskóli A-sveit 22½

🥈Landakotsskóli A-sveit 22

🥉Hvaleyrarskóli A-sveit 19½

Úrslit mótsins á chess-results:

Sigursveit Rimaskóla

Sigursveit Rimaskóla A-sveit

  1. Sævar Svan Valdimarsson
  2. Patrekur Einarsson
  3. Kristófer Jökull Sigurðsson
  4. Mikael Már Atlason

Liðsstjóri: Helgi Árnason

Silfurlið Landakotsskóla A-sveit

Silfurlið Landakotsskóla A-sveit

  1. Venkata Abhinay Chowdary Dasari
  2. Praanvi Kandukuri
  3. Vedansh Kalasthri
  4. Vrushank Vaibhav Anandgaonkar

Liðsstjóri Vigfús Óðinn Vigfússon.

Bronslið Hvaleyrarskóla A-sveit

Bronslið Hvaleyrarskóla A-sveit

  1. Emilía Klara Tómasdóttir
  2. Nói Ingvaldsson
  3. Þormóður Ari Tröster
  4. Kristófer Þór Arnarsson

Liðsstjóri: Ægir Magnússon

Efsta b-sveitin var Rimaskóli sem endaði í fimmta sæti í mótinu með 15½ vinning

Efsta b-sveitin Rimaskóli
  1. Khang Minh Tran
  2. Tómas Breki Jónsson
  3. Jón Ólafur Pálsson
  4. Léo Arnbjörnsson

Liðsstjóri: Anh Hai Tran

Efsta c-sveitin kom einnig í hlut Rimaskóla c-sveit

C-sveit Rimaskóla
  1. Ásta Sóllilja Marteinsdóttir
  2. Elsa María Bachadóttir
  3. Guðrún Helga Petersen
  4. Adam Elí Óskarsson

Efsta Landsbyggðarsveit var sveit Flúðaskóla

Flúðaskóli

Að lokum vill Skáksambandið minna á Íslandsmót barnaskólasveita, 4.-7. bekkur, sem fram fer í 18. apríl og Íslandsmót grunnskólasveita, 8.-10. bekkur, sem fram fer 19. apríl.

Ljósmyndir frá mótinu

_D0A6341

- Auglýsing -