Birkir Ísak Jóhannsson vann sinn þriðja sigur í röð í dag í Stúkunni í Kópavogi þar sem Alþjóðlega Kópavogsmótið – Ungir Meistarar hélt áfram með sjöttu umferð mótsins. Sigurinn gefur Birki vonir um áfangasénsa. Vignir Vatnar Stefánsson gerði jafntefli við sterkan úkraínskan stórmeistara og sigur á morgun gegn Litháanum sterka Paulius Pultinevicius myndi lyfta Vigni í efstu sæti mótsins.
Rennum yfir gang mála í umferð dagsins:
Hilmir Freyr Heimisson – Birkir Ísak Jóhannsson
Birkir náði sér í sinn þriðja sigur í röð í dag. Enn og aftur var hann klár í bátana í byrjunarfræðunum. Svartur fékk betra í miðtaflinu en afleikur Hilmis 22.c4 flýtti fyrir málum en þá var Hilmir við það að komast í jafnt tafl.
Þessi þriðji sigur í röð kemur Birki í 50% og það er einmitt það sem þarf til þess að ná IM-áfanga!
Mikhaylo Oleksiyenko – Vignir Vatnar Stefánsson

Vignir tefldi eigin uppástungu frá VignirVatnar.is, svokallaða Nimzovitsch-sikileyjarvörn. Oleksiyenko vafalítið ekki átt von á þessu og missti hann af eina færi hvíts að fá eitthvað úr byrjuninni og strax eftir það var Vignir aldrei í vandræðum og í raun með ívið betra ef eitthvað var. Öruggt jafntefli.
Bárður Örn Birkisson – Dagur Ragnarsson
Skemmtileg skák þar sem báðir fengu sín færi. Bárður fékk betra tafl framan af og stórhættuleg færi.
Hér vill tölvan leika 16.Hxf7!? með stórhættulegum færum á hvítt. Auðvelt er að skilja að án tölvuútreikninga er þetta ef til vill áhætta sem erfitt er að taka yfir borðinu. Bárður valdi aðra leið og báðir fengu sín færi en loks tók Dagur yfir.
32…Dxf2+ voru smettleg lok, riddaraskákin á g4 vinnur liðið til baka.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson – Valery Kazakouski
Nokkuð ójafnvægi var í þessari skák lengst af. Litháinn sýndi með byrjanavali sínu að hann ætlaði sér sigur. Skákin lengst af í gamla góða „dýnamíska jafnvæginu“. Hér gerði Litháinn þó mistök:
28…Bxb2 fyrst var nauðsynlegur en 28…Hf7? var slakur. Sasha sá þetta reyndar í annarri tilraun eftir að hafa endurtekið stöðuna en nú getur hvítur tekið á g7 og svo g5 og skákin á f6 er óþægileg. Hvítur fékk nægjanlega yfirburði hér til að klára taflið.
Paulius Pultinevicius – Jaime Santos Latasa
Ógleymanleg skák…fyrir engan. Jafntefli heldur báðum við toppinn eftir gríðarlega gleðisnauða skák.
Úrslit umferðarinnar:
Tvö jafntefli í umferðinni, sem er met það sem af er móts!
Staðan:
Paulius heldur toppsætinu, Oleksiyenko er í öðru sæti en Vignir gæti náð góðu stökki upp stöðutöfluna leggi hann Paulius í næstu umferð.
Næsta umferð:
Á morgun er FRÍDAGUR en mótið heldur áfram á þriðjudaginn í Stúkunni í Kópavoginum en skákirnar hefjast sem fyrr 15:00, áhorfendur velkomnir. Vignir fær hvítt gegn Paulius. Birkir og Bárður þurfa báðir að halda 50% árangi út mótið til að ná IM-áfanga.
Skákdeild Breiðabliks í samstarfi við Helga Ólafsson á mikið hrós skilið fyrir mótahaldið en mót af þessu tagi hefur sárlega vantað fyrir íslenska titilveiðara undanfarin ár. Sigtryggssjóður kom jafnframt sterkur inn í þetta verkefni!

- Skákir á lichess
- Skákir á chess.com
- Mótið á Chess-Results
- Myndir frá mótinu ->
Almennar upplýsingar um mótið:
Staðsetning Glersalurinn á þriðju hæð stúkunnar við Kópavogsvöll. Kaffi og veitingar verða á staðnum.
Dagskrá (9 umferðir, einn hvíldardagur)
Þriðjudagur, 10. mars, kl. 15:00 – Opnunarathöfn og 1. umferðMiðvikudagur, 11. mars, kl. 15:00 – 2. umferðFimmtudagur, 12. mars, kl. 15:00 – 3. umferðFöstudagur, 13. mars, kl. 15:00 – 4. umferð- Laugardagur, 14. mars, kl. 15:00 – 5. umferð
- Sunnudagur, 15. mars, kl. 15:00 – 6. umferð
- Mánudagur, 16. mars – Hvíldardagur
- Þriðjudagur, 17. mars, kl. 15:00 – 7. umferð
- Miðvikudagur, 18. mars, kl. 15:00 – 8. umferð
- Fimmtudagur, 19. mars, kl. 11:00 – 9. umferð
- Fimmtudagur, 19. mars, kl. 16:00 – Lokaathöfn
Keppendur
Meðalstig keppenda er 2432 skákstig og er stigahæsti skákmaður mótsins Jaime Santos Latasa sem varð Íslandsmeistari með Vestmannaeyingum um helgina. Í raun eru fjórir fyrstaborðsmenn úr keppninni með, þeirra á meðal Vignir Vatnar Stefánsson sem fer fyrir heimavarnarliðinu. Aðrir Íslendingar eru flestir titilveiðarar, menn sem gera sér vonir um annaðhvort áfanga að alþjóðlegum meistaratitli eða stórmeistaratitli.
Frekari upplýsingar:
- https://www.kopavogurinternational.is/
- https://www.kopavogurinternational.is/schedule
- https://www.kopavogurinternational.is/blog/categories/players
















