Undanúrslit Síminn Invitational í netskák fara fram í kvöld og hefjast kl. 20. Athugið að keppnin fer fram seinna en venjulega en það er vegna alþjóðlega mótsins í Kópavogi. Gefa Vigni tækifæri á að klára sína skák þar áður en hann mætir í netskákina
Fyrra einvígið er á milli Björns Þorfinnssonar og Jóns Kristins Þorgeirssonar. Það síðara verður á milli Vignis Vatnars og Ingvar Þórs Jóhannessonar.
Skákskýringar að þessu sinni verða í höndum Björns Ívars og samfélagsmiðlastjörnunnar Gauta Páls Jónssonar.
Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Viðureignirnar eru á Lengjunni.
Harpa Ingólsdóttir Gígja er efst í Draumaliðsdeildinni. Staðan í Draumaliðsdeildinni.
Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Verði jafnt verður teflt til þrautar. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.
Verðlaun í aðalkeppninni
- 200.000 kr
- 100.000 kr.
- 25.000 kr
- 25.000 kr.
















