Toppbaráttan er orðin grjóthörð á Alþjóðlega Kópavogsmótinu – Ungir Meistarar þar sem stórmeistarinn okkar Vignir Vatnar Stefánsson hefur náð efstu mönnum að vinningum. Vignir lagði að velli Litháann sterka Paulius Pultinevicius og er nú jafn honum og tveimur öðrum í toppsæti mótsins. Birkir Ísak náði góðu jafntefli sem heldur hans áfangasénsum á lífi.
Rennum yfir gang mála í umferð dagsins:
Vignir Vatnar Stefánsson – Paulius Pultinevicius

Hér var í raun lífsnauðsynlegt fyrir Vigni að ná í sigur til að blanda sér í toppbaráttuna. Vignir gerði það svo sannarlega og tefldi af krafti með hvítu mönnunum og var greinilega vel undirbúinn. Byrjanahugmynd hans með Bg5xf6 mögulega sótt frá áskorandanum Matthias Bluebaum sem hefur teflt svona með hvítu.
Mikilvægt er í stöðunni að hvítur á framrásina 9.e4! þar sem svartur getur ekki tekið 9…dxe4 vegna 10.Dxe4 og skálínan verður ekki völduð. Vignir fékk því gott rými hér og þægilega stöðu eftir frekari framrás e-peðsins.
Vignir byggði upp hættulega stöðu á kóngsvæng en aðgerðir Paulius virtust hægari á drottningarvæng
Hér lét Vignir til skarar skríða með 28.Bxg6 og tefldi framhaldið af fítonskrafti og vann glæsilegan sigur!
Birkir Ísak Jóhannsson – Mikhaylo Oleksiyenko
Birkir Ísak hélt áfangasénsum sínum á lífi með jafntefli gegn Olekiyenko. Byrjanataflmennskan var sérstök. Þessi staða eftir 13.h6+
Hér höfðu báðir keppendur eytt innan við 10 mínútum og báðir vel með á nótunum í þessari línu. Oleksiyenko virtist vera að ná yfirhöndinni peði yfir en Birkir tefldi mjög skemmtilega, fórnaði hrók og fann í framhaldinu eina jafnteflisleikinn.
40.Rg8!! bjargar hér deginum! Jafntefli var samið þar sem eftir 40…Dg6 41.Rxf6 verður svartur að taka með drottningu, 41…Dxf6 og þá þráskákar hvítur á h7 og g7. Skemmtilegt þema!
Dagur Ragnarsson – Hilmir Freyr Heimisson
Uppgjör tveggja af okkar bestu ungu alþjóðlegu meistara í dag. Dagur vann peð í miðtaflinu en þeir tefldu London-byrjunina svokölluðu. Hilmir fékk ekki nægjanlegt spil fyrir peðið og Dagur náði að innbyrða vinninginn. Tæknin að mestu leiti góð en svartur átti fræðilega jafntefli undir lok endataflsins en líklega erfitt engu að síður í praktískri skák yfir borðinu.
Jaime Santos Latasa – Aleksandr Domalchuk-Jonasson
Santos Latasa getur teflt! Hann sýndi styrk sinn og vélaði Aleksandr niður jafnt og þétt með þungri stöðutaflmennsku.
Valery Kazakouski – Bárður Örn Birkisson

Kazakouski náði að setja pressu á Bárð bæði á borðinu og klukkunni og sigurinn hér virtist eiginlega aldrei í mikilli hættu, þétt taflmennska hjá Litháanum.
Úrslit umferðarinnar:
Enn bara eitt jafntefli í umferðinni! Mikilvægur sigur hjá Vigni heldur betur.
Staðan:

Vignir efstur ásamt Mykhaylo, Jaime og Paulius. Birkir Ísak þarf 1 af 2 fyrir IM-áfanga. Vignir og Jaime eiga á „pappírnum“ léttasta prógram af efstu mönnum. Mykhaylo og Paulius mætast í næstu umferð.
Næsta umferð:
Mótið heldur áfram á morgun í Stúkunni í Kópavoginum en skákirnar hefjast sem fyrr 15:00, áhorfendur velkomnir. Vignir fær svart gegn Aleksandr og þarf að vinna til að gera atlögu að toppsætinu. Birkir Ísak tryggir sér IM-áfanga leggi hann Dag að velli með hvítu mönnunum. Mykhaylo og Paulius slást um að halda sér í toppbaráttunni.
Skákdeild Breiðabliks í samstarfi við Helga Ólafsson á mikið hrós skilið fyrir mótahaldið en mót af þessu tagi hefur sárlega vantað fyrir íslenska titilveiðara undanfarin ár. Sigtryggssjóður kom jafnframt sterkur inn í þetta verkefni!

- Skákir á lichess
- Skákir á chess.com
- Mótið á Chess-Results
- Myndir frá mótinu ->
Almennar upplýsingar um mótið:
Staðsetning Glersalurinn á þriðju hæð stúkunnar við Kópavogsvöll. Kaffi og veitingar verða á staðnum.
Dagskrá (9 umferðir, einn hvíldardagur)
Þriðjudagur, 10. mars, kl. 15:00 – Opnunarathöfn og 1. umferðMiðvikudagur, 11. mars, kl. 15:00 – 2. umferðFimmtudagur, 12. mars, kl. 15:00 – 3. umferðFöstudagur, 13. mars, kl. 15:00 – 4. umferðLaugardagur, 14. mars, kl. 15:00 – 5. umferðSunnudagur, 15. mars, kl. 15:00 – 6. umferðMánudagur, 16. mars – HvíldardagurÞriðjudagur, 17. mars, kl. 15:00 – 7. umferð- Miðvikudagur, 18. mars, kl. 15:00 – 8. umferð
- Fimmtudagur, 19. mars, kl. 11:00 – 9. umferð
- Fimmtudagur, 19. mars, kl. 16:00 – Lokaathöfn
Keppendur
Meðalstig keppenda er 2432 skákstig og er stigahæsti skákmaður mótsins Jaime Santos Latasa sem varð Íslandsmeistari með Vestmannaeyingum um helgina. Í raun eru fjórir fyrstaborðsmenn úr keppninni með, þeirra á meðal Vignir Vatnar Stefánsson sem fer fyrir heimavarnarliðinu. Aðrir Íslendingar eru flestir titilveiðarar, menn sem gera sér vonir um annaðhvort áfanga að alþjóðlegum meistaratitli eða stórmeistaratitli.
Frekari upplýsingar:
- https://www.kopavogurinternational.is/
- https://www.kopavogurinternational.is/schedule
- https://www.kopavogurinternational.is/blog/categories/players
















