Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson náði ekki að knésetja vinn sinn, íslenska landsliðsmanninn Aleksandr Domalchuk-Jonasson í áttundu umferð á Alþjóðlega Kópavogsmótinu – Ungir Meistarar sem fram fór í dag. Litháinn Paulius Pultinevicius náði aftur toppsætinu þegar hann lagði Mykhaylo Oleksiyenko að velli með svörtu og Jaime Santos Latasa náði að fylgja honum eftir. Birkir Ísak Jóhannsson gerði jafntefli með hvítu gegn Degi Ragnarssyni og þarf að ná erfiðu jafntefli með svörtu í lokaumferðinni til að klára áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.
Rennum yfir gang mála í umferð dagsins:
Aleksandr Domalchuk-Jonasson – Vignir Vatnar Stefánsson

Vignir hafði svart gegn Aleksandr og varð helst að vinna til að halda vonum sínum á lofti í harðri toppbaráttu. Miðtaflið fór nánast ekkert úr skotgröfunum og Vignir fékk kannski örlitla sénsa á smá pressu í endataflinu en mislitir biskupar gerðu það að verkum að vinning var ekki að fá að þessu sinni.
Birkir Ísak Jóhannsson – Dagur Ragnarsson

Birkir Ísak hefði getað náð IM-áfanga með því að leggja Dag að velli. Skák þeirra varð hinsvegar traust, Birkir tók ekki mikið af sénsum og sætti sig við örlitla pressu en það dugði ekki til. Jafnteflið heldur þó vonum um áfanga á lífi en til þess þarf Birkir jafntefli í lokaumferðinni gegn Kazakouski.
Hilmir Freyr Heimisson – Valery Kazakouski

Hilmir Freyr hefur ekki verið upp á sitt besta á þessu móti. Vann vissulega Vigni í fyrstu umferð en lítið gengið síðan þá. Tapið í dag hans fimmta tap í röð! Lengi framan af skák hafði Hilmir undirtökin en náði ekki að fylgja því eftir.
Bárður Örn Birisson – Jaime Santos Latasa
Bárður Örn hélt í veika von um IM áfanga en til þess þurfti hann úrslit gegn Jaime Santos Latasa. Líkt og Hilmir hafði Bárður fínt tafl framan af. Jaime fórnaði peði í kóngsindverjanum og hafði kannski ekki nægar bætur skv. tölvum en vissulega í praktík…eins og kom á daginn. Jaime náði að snúa flæðinu sér í vil og vann skákina og komst á toppinn ásamt Paulius.
Mykhaylo Olesiyenko – Paulius Pultinevicius

Pultinevicius virtist vera mun meira í sambandi við stöðuna í þessari skák gegn Oleksiyenko. Hann náði að yfirspila Úkraínumanninn í miðtafilnu og endataflinu og hoppa því aftur í toppsætið ásamt Jaime.
Úrslit umferðarinnar:
Tvö jafntefli en þau hefðu mátt lenda öðruvísi upp á möguleika Blikastrákanna.
Staðan:

Paulius og Jaime orðnir efstir, Vignir þarf nú mjög hagstæð úrslit í lokaumferðinni til að komast aftur í toppsætið. Birkir Ísak þarf hálfan vinning í viðbót
Næsta umferð:
Lokaumferðin hefst á morgun klukkan 11:00 í Stúkunni í Kópavoginum, áhorfendur velkomnir. Kazakouski stendur í vegi fyrir IM-normi Birkis Ísaks, verðugt verkefni! Vignir verður að leggja bárð og treysta á að Aleksandr og Hilmir Freyr hjálpi honum aftur á toppinn!
Skákdeild Breiðabliks í samstarfi við Helga Ólafsson á mikið hrós skilið fyrir mótahaldið en mót af þessu tagi hefur sárlega vantað fyrir íslenska titilveiðara undanfarin ár. Sigtryggssjóður kom jafnframt sterkur inn í þetta verkefni!

- Skákir á lichess
- Skákir á chess.com
- Mótið á Chess-Results
- Myndir frá mótinu ->
Almennar upplýsingar um mótið:
Staðsetning Glersalurinn á þriðju hæð stúkunnar við Kópavogsvöll. Kaffi og veitingar verða á staðnum.
Dagskrá (9 umferðir, einn hvíldardagur)
Þriðjudagur, 10. mars, kl. 15:00 – Opnunarathöfn og 1. umferðMiðvikudagur, 11. mars, kl. 15:00 – 2. umferðFimmtudagur, 12. mars, kl. 15:00 – 3. umferðFöstudagur, 13. mars, kl. 15:00 – 4. umferðLaugardagur, 14. mars, kl. 15:00 – 5. umferðSunnudagur, 15. mars, kl. 15:00 – 6. umferðMánudagur, 16. mars – HvíldardagurÞriðjudagur, 17. mars, kl. 15:00 – 7. umferðMiðvikudagur, 18. mars, kl. 15:00 – 8. umferð- Fimmtudagur, 19. mars, kl. 11:00 – 9. umferð
- Fimmtudagur, 19. mars, kl. 16:00 – Lokaathöfn
Keppendur
Meðalstig keppenda er 2432 skákstig og er stigahæsti skákmaður mótsins Jaime Santos Latasa sem varð Íslandsmeistari með Vestmannaeyingum um helgina. Í raun eru fjórir fyrstaborðsmenn úr keppninni með, þeirra á meðal Vignir Vatnar Stefánsson sem fer fyrir heimavarnarliðinu. Aðrir Íslendingar eru flestir titilveiðarar, menn sem gera sér vonir um annaðhvort áfanga að alþjóðlegum meistaratitli eða stórmeistaratitli.
Frekari upplýsingar:
- https://www.kopavogurinternational.is/
- https://www.kopavogurinternational.is/schedule
- https://www.kopavogurinternational.is/blog/categories/players















