Myndskreyting: Tómas Tandri

Unglingalandsliðslið frá Íslandi tekur þátt í 13. móti ChessMates International Youth Teams Tournament í Mónakó dagana 19.–21. mars 2026. .

Um ChessMates-keppnina – sögu og fyrirkomulag

ChessMates hefur frá árinu 2014  skipulagt alþjóðleg unglingamót liða til að bæði keppa og vaxa í skáklistinni sem og að efla liðsanda og vináttu milli aðildarfélaga. Aðilar að Chessmates eru: Rotterdamse Schaakbond, England, Írland, Eistland, Sachsen-Anhalt, Mónakó auk Íslands sem gekk í Chessmates í fyrra.

Fyrirkomulag 2026:

  • Átta lið keppa (10 manna lið: 2 keppendur í hverjum aldursflokki U12, U14, U16, U18 og U20 – blandað kynjahlutfall, minnst ein stúlka og einn strákur).
  • 5 umferðir: Tveir riðlar. Tvö efstu liðin i hvorum riðli tefla um verðlaunasæti. Hin liðin keppa um 5.-8. sæti.
  • Tímamörk: 90 mínútur + 30 sekúndna viðbót á leik.
  • Allar umferðir í Casa di Soci í Mónakó

Hversu oft hefur Ísland tekið þátt?

Ísland tekur nú þátt í þriðja skipti. Fyrst í áttunda mótinu á Írlandi árið 2023 og svo aftur í því tólfta York í Englandi árið 2025. Ísland mun haldið mótið árið 2027.

Mótið er frábært tækifæri fyrir Ísland til að gefa fleiri ungmennum tækifæri á að tefla fyrir Íslands hönd á hverju ári.

Hverjir tefla fyrir Ísland?

Ísland er sjötta sterkasta liðið á pappírnum (skjánum).

Feneyjar, Rotterdam og Írland eru í sama riðli og Ísland. Það var því smá áskorun að ná  áfram í efri riðilinn fyrir Ísland en vel mögulegt.

Forsvarsmenn Chessmates um mótið:

“ChessMates International is about more than individual skill — it’s about teamwork,
cultural exchange, and building friendships across borders.
— Jurriaan Kien, Forseti ChessMates og hugmyndasmiður.

“Hosting this event in Monaco continues the Principality’s proud tradition of supporting
international sports events, particularly chess, while celebrating youth cooperation and
team competition.”
— Jean-Michel Rapaire, forseti skáksambands Mónakó.

Fylgstu með!

- Auglýsing -