Íranski stórmeistarinn Amin Tabatabaei er einn efstur á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu með fjóra vinninga úr fjórum skákum. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson er efstur íslensku keppendanna en hann stöðvaði Akureyringinn efnilega Markús Orra Óskarsson í hörkuskák en Markús hefur verið á góðum skrið undanfarið.
Amin lagði sterkan og efnilegan franskan skákmann á efsta borði. Sá franski var full aggressífur í byrjuninni og 15. leikur hans var slakur og klaufalegur. 15.Hh1?
Amin lét ekki bjóða sér þetta tvisvar og vann skiptamun með 15…Bg4! og segja má að eftirleikurinn hafi bara verið spurning um smá tækni. Önnur topp borð enduðu með jafntefli en þó munaði minnstu að Deac tapaði nokkuð óvænt gegn stigalægri skákmanni þrátt fyrir að stýra hvítu mönnunum en hann náði að redda sér. Ivanchuk minnti á sig með góðum sigri og er nálægt toppnum.

Sigur Vignis gegn Markúsi var spennandi skák þar sem báðir höfðu sín færi. Reynslan vóg þungt að þessu sinni!
Pétur Úlfar varð að lúta í dúk gegn bandarískum stórmeistara, fórnaði peði í byrjuninni en náði ekki að halda nægjanlega sterku frumkvæði, engu að síður ágætis skák hjá Pétri sem fékk skemmtilega reynslu á 7. borði í miðju móti gegn stórmeistara!
Eric De Winter er mikill vinur Reykjavíkurskákmótsins og kemur hér ár eftir ár. Hann mætti streymararnum Tamöru Kadovic annað árið í röð og nú náði hann ansi laglegri fléttu til að bjarga jafntefli!
Eric með tapað tafl reyndi 26.b4!? og Tamara gætti ekki að sér, 26…Dxb4?? 27.Dxb4 Rxb4
Hér kom svo 28.Hf8+! Hxf8 29.Re7+ og ótrúlegt en satt sleppur svartur ekki úr þráskák tveimur hrókum, biskup og peði yfir!
Helstu úrslit:
Staða efstu skákmanna:

Myndapakki úr 4. umferð (Tómas og Jökull)
Stiklur úr 4. umferð
View this post on Instagram
Fimmta umferð mótsins hefst á morgun, föstudag, kl. 09:00 og sjötta umferð kl. 16:00 síðar sama dag.
Á efsta borði verður stór viðureign þar sem Amin Tabatabaei (2700) mætir Vasyl Ivanchuk (2624).
Vignir Vatnar fær hvítt gegn Maurizzi (2614) á þriðja borði.
Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson verður með skákskýringar og má gera ráð fyrir að þær hefjist um kl. 18:00 á morgun í Stemmu í Hörpu.
Chess-Results
Hægt er að nálgast skákir á:
Streymarar:
- Hannah Sayce
- Tamara Kadovic
- Matthew Perchard (rás og skýringar hjá Lulurobs)
- Simon Williams
- Keti Tsatsalashvili
Efni frá mótshöldurum:
- Heimasíða mótsins
- Instagram Skáksambandsins
- TikTok Skáksambandsins
- Twitter/X Reykjavik Open
- Facebook síða mótsins
Annað:





















