Hið árlega Pub Quiz Reykjavíkurskákmótsins fór fram í gærkvöldi. Viðburðurinn er orðinn ansi fastur liður af mótinu og hefur farið fram í báðum að verða tvo áratugi! Ýmsir mætir skákmenn hafi unnið Quiz-ið í gegnum tíðina, þar á meðal Magnus Carlsen í slagtogi við Jon Ludvig Hammer og Helgi Ólafsson í slagitogi við Dirk Jan ten Geuzendam ritstjóra New in Chess.
Í ár var það íslenskt lið sem kom sá og sigraði. Gaman að því að Gauti Páll Jónsson var að vinna í þriðja skiptið en hann hefur haft mismunandi samherja í þessi þrjú skipti og er vitanlega eini íslenski keppandinn sem unnið hefur þrisvar sinnum! Með Gauta í sigurliðinu voru Arnar Ingi, Björgvin og Askur.
Stelpurnar í kvennalandsliðinu voru grátlega nálægt efsta sætinu en breyttu réttum svörum í röng á síðustu stundu og urðu af sigrinum.
Quiz-ið að þessu sinni var líklegast í erfiðari kantinum en vinningsliðið fékk 20 stig sem er með því minnsta sem dugað hefur til sigurs í gegnum árin.
















