Íranski stórmeistarinn Amin Tabatabaei (2700) heldur áfram góðu gengi sínu á Reykjavíkurskákmótinu og hefur nú unnið allar fimm skákir sínar og er einn efstur. Í dag lagið hann goðsögnina Ivanchuk að velli á snaggaralegan hátt. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2511) fer enn fyrir heimavarnarliðinu. Hann gerði jafnteli við fyrrverandi heimsmeistara unglinga, Frakkann sterka Marc’andria Maurizzi (2614).

Amin sýndi styrkleika sinn vel í dag og lagði Ivanchuk að velli í rétt um 30 leikjum. Ivanchuk hefur verið á fínustu siglingu það sem af er ári þannig að hér er mikið styrkleikamerki á ferð hjá Írananum.
Amin Tabatabaei defeats Vasyl Ivanchuk with the white pieces in 30 moves and is now 5/5, leading the tournament! #chess #reykjavikopen pic.twitter.com/BzqC3SJwcP
— ReykjavikOpenChess (@ReykjavikOpen) March 28, 2026

Vignir fékk lítið með hvítu og áttaði sig fljótlega í miðtaflinu að hann þyrfti að tefla upp á að klára jafnteflið. Líklegast skynsöm ákvörðun!
Markús Orri Óskarsson er einn af ungu Íslendingunum sem hafa vakið athygli. Hann fór fyrir íslensku ungmennaliði í Mónakó síðustu helgi með glæstri frammistöðu og hefur nú lagt alþjóðlegan meistara að velli auk þess að gefa Vigni Vatnari hörkuskák í 4. umferð. Í dag hefði hann átt að leggja annan alþjóðlegan meistara með yfir 2400 skákstig að velli en sættist á jafntefli í vænlegri stöðu eftir hörkubaráttu.
Íslandsvinirnir virðast margir hverjir vera að taka úr reynslubankanum. Zain Patel er ungur skákmaður sem þrátt fyrir það hefur teflt á fjölmörgum Reykjavíkurskákmótum. Honum finnst gaman að tefla hér og mamma hans virðist finna sér eitthvað til dundurs milli umferða.
Andstæðingur hans þarf bara að leika 71…Dxg3 og ætti að vinna nokkuð auðveldlega. Georgíumaðurinn fann hinsvegar 71…hxg3?? og frussaði af reiði þegar hann áttaði sig á því að 72.Df3+! er þvingað patt!
Harmleikirnir leynast víða á mótinu, Króatinn Leon Livaic fékk nóg eftir skák sína í dag! Króatinn hafði kolunnið tafl fyrr í skákinni en þegar við komum við sögu er hann búnn að missa tökin og skákin orðin jafntefli með bestu taflmennsku.
Hér verður svartur að leika 54…He2 eða 54…Hd3 til að setja á e-peðið. Livaic lék 54…Hc2?? og vaknaði upp við vondan draum eftir 55.Rd4 Hb2 56.Rf5!
Hvítur hótar 57.Rg7 sem er mát. Taki svartur riddarann, eins og hann gerði 57…Bxf5 kemur 58.h7 með máthótun á h6! Livaic gafst upp. Það skársta sem hann getur reynt er að gefa hrókinn til að forðast mátið en þá er hann með koltapað endatafl. Ótrúleg lok!
Bodhana náði að vinna annan bráðefnilegan skákmann með hrók og biskup gegn riddara. Bodhana mætir sjálfum Simon Williams í næstu umferð!
WIM Bodhana Sivanandan(2268) wins with the black pieces against Karson Lu(1827) and is now 3,5/5 ♟️ #chess #reykjavikopen pic.twitter.com/Plg3XXyXHF
— ReykjavikOpenChess (@ReykjavikOpen) March 28, 2026
Helstu úrslit:
Staða efstu skákmanna:

Næstu Íslendingar hafa 3,5 vinning en meðal þeirra eru Aleksandr Domalchuk-Jonasson, Björn Þorfinnsson, Benedikt Briem og Guðmundur Kjartansson.
Myndapakki úr 5. umferð (hægt er að fletta myndum með örvunum hægra megin!)
Sjötta umferð mótsins hefst kl. 16:00 í dag.
Á efsta borði hefur Amin Tabatabaei (2700) svart gegn Frakkanum Maxime Lagarde (2618) sem freistar þess að stöðva sigurgöngu Íranans. Vignir hefur svart gegn ungum Armena, Sergey Sklokin og hefur svart.
Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson verður með skákskýringar og má gera ráð fyrir að þær hefjist um kl. 18:00 á eftir í Stemmu í Hörpu.
Chess-Results
Hægt er að nálgast skákir á:
Streymarar:
- Hannah Sayce
- Tamara Kadovic
- Matthew Perchard (rás og skýringar hjá Lulurobs)
- Simon Williams
- Keti Tsatsalashvili
Efni frá mótshöldurum:
- Heimasíða mótsins
- Instagram Skáksambandsins
- TikTok Skáksambandsins
- Twitter/X Reykjavik Open
- Facebook síða mótsins
Annað:



















