Þótt veðrið hafi skánað á sunnudeginum þá voru óveðursský yfir efsta borði á Reykjavíkurskákmótinu. Stormsveipurinn Amin Tabatabaei lét vandamálunum rigna yfir stöðu Frakkans Marc’Andria Maurizzi og nældi sér í sinn sjöunda vinning í sjö skákum, nánast fáheyrðir yfirburðir á Reykjavíkurskákmóti! Guðmundur Kjartansson hefur tekið forystuna hjá Íslendingum eftir sigur í Íslendingaslagnum gegn Vigni Vatnari Stefánssyni.
Tabatabaei hafði hvítt gegn Fransmanninum á efsta borði. Sá íranski nennti engu hálfkáki og blés til harðrar sóknar snemma tafls. Tabatabaei lék hinn pólska Kuba, strák sem er hér á vegum pólskra „Make a wish“ samtaka leika kóngspeði sínu fram um tvo leiki. Keppendur eru alls ekki skyldugir til að leika leiknum sem leikið er fyrir þá af heiðursgestum en athyglisvert er að Amin lét Kuba ekki velja heldur sagði honum að leika 1.e4. Síðan kom 1.d4 í fyrsta leik þegar taflið hófst, smá andlegur skæruhernaður hjá stigahæsta manni mótsins!
Þrátt fyrir harða sóknartilburði stóð Maurizzi af sér árásina (missti raunar af smá séns sjálfur aðeins fyrr) og lengst af var skákin í jafnvægi, hvítur með umframpeð en svartur biskupaparið sem oft á tíðum núllast út. Rétt eftir að Maurizzi náði tímamörkunum gerði hann mistök.
41…g2?? var afleikur. Hér var nauðsynlegt að leika 41…Kc8 til að gefa ekki tempó með skákinni á a-línunni. 42.a6+! og allt í einu er erfitt að velja góðan reit fyrir kónginn. 42…Kc8 var skást en 42…Ka8 43.b6! g1=D 43.b7+ Ka7 44.b8=D Ka6 45.Be3! er skemmtileg lína!
Hvítur var hér kominn með unnið en henti því svo aftur frá sér í nokkra leiki en Fransmaðurinn skilaði skákinni svo til baka. Sá á fund sem finnur ef enginn finnst eigandinn! Tabatabaei kláraði svo drottningarendataflið með góðri tækni eftir það!
View this post on Instagram
Skák Vignis og Guðmundar var eiginlega úrslitaskák um hvor Íslendingurinn gæti gert tilkall til einhverra af verðlaunasætum á mótinu. Guðmundur þó með nokkuð verri oddastig. Eitthvað virtist byrjunin fara úrskeiðis hjá Vigni og þurfti hann að sætta sig við aðeins verra miðtafl þar sem Guðmundur hafði í raun tök á að juðast að vild til lengri tíma, eitthvað sem hentar Guðmundi vel.
Vignir virtist komast yfir það versta og leit út fyrir að hann ætti að halda endatafli peði undir með biskup gegn riddara. Lítil mistök söfnuðust þó saman og á endanum náið Guðmundur að koma skriðþunga á d-peð sitt og náið sigri í 98 leikjum! Ekki í fyrsta skipti sem Guðmundur teflir eina af lengstu skákum umferðarinnar á Reykjavíkurskákmóti!
Á efstu borðunum minnti Matthew Wadsworth á sig með góðum sigri gegn frönskum IM. Matthew er nú einn í öðru sæti og sá eini sem stendur í raun á milli Tabatabaei og sigurs hans á Reykjavíkurskákmótinu.
Margir hafa gert tilkall til „swindle“ verðlauna á þessu móti. Eric De Winter átti eftirminnilega fléttu gegn Tamara Kadovic og Zain Patel átti lúmkst patt-trikk. Gauti Páll Jónsson blandaði sér í umræðuna.
Gauti Páll er hér með gjörtapað tafl eftir einhverskonar yfir-Gautun eins og gárungarnir kalla það stundum. Hér reyndi hann lokatrikkið með 1.f3!? og svartur féll í gildrun 1…Hxd6?? og hvítur nær þráskák með 2.Hh8! í stað þess að taka hrókinn til baka.
Harmurinn leynist víða og Englendingurinn Tim Wall vill vafalítið gleyma sínu klúðri. Hann var við það að ná góðum sigri gegn sterkum alþjóðlegum meistara…en riddaranir lúra!
Drottning frá finnur fjórir til einar fimm var einstaklega slakur leikur. Tim gafst upp eftir 69.De5?? Dxf5 og riddaragaffallinn er leiðinlegur.
Nokkrir skákmenn hafa verið að ná eftirtektarverðum árangri. Eistneska skákstúlkan Narva Mai er með árangur sem samsvarar áfanga að stórmeistaratitli.
Estonian IM Narva Mai is having a very strong Reykjavik Open! She just beat GM-elect Nico Chasin in 23 moves with white and has a PFR over 2600 on course for a GM norm, having already faced more than the required three GM opponents! @OnTheQueenside #Chess #ReykjavikOpen pic.twitter.com/ONpGRrHKHo
— ReykjavikOpenChess (@ReykjavikOpen) March 29, 2026
Í umferð dagsins gjörsamlega slátraði hún KR-ingnum Nico Chasin.
Kínverskur skákmaður, Liu Bei hefur vakið verðskuldaða athygli. Hann hefur aðeins rétt rúm 1900 skákstig en hefur náð ótrúlegum árangri. Hann var taplaus fyrir skák dagsins, gert jafntefli við tvo stórmeistara auk Björns Þorfinnssonar og lagt mjög sterka skákmenn að velli.
Vissulega þegar svona frammistöður sjást fara menn oft að hvísla um að eitthvað gruggugt sé í pokahorninu. Það virðist hinsvegar ekki vera staðan. Engin tölfræðileg gögn úr skákum hans styðja við slíka kenningu auk þess sem dómarateymi mótsins hefur fylgst vel með honum í kjölfarið á góðum árangri.

Myndapakki úr 7. umferð (smellið á örina til hægri til að sjá næstu myndir!)
Helstu úrslit:

Guðmundur leggur Vigni að velli og kemur sér í betri mál. Björn Hólm átti ekki roð í Gupta að þessu sinni en Magnús Pálmi náði góðu jafntefli, stóð líklega til vinnings á köflum gegn svissneskum IM. Dagur Ragnarsson lyfti sér í fimm vinninga með sigri á sýningarborði. Markús Orri náði ekki að fylgja eftir góðri byrjun og laut í dúk í sinni skák. Hannes vann sína skák, Bragi og Áskell skildu jafnir og sama gerðu Benedikt Briem og Þórisson. Björn Þorfinnsson lagði landsliðskonuna Hallgerði Þorsteinsdóttur.
Staða efstu skákmanna:
.
Tabatabaei efstur og Wadsworth sá eini sem á raunhæfan séns. Guðmundur Kjartansson er tæknilega í skiptu 3. sæti en með langverstu oddastigin og þyrfti líklegast að vinna báðar sínar skákir í lokaumferðunum til að ná góðu sæti.
Áttunda umferð mótsins hefst á morgun, mánudag kl. 16:00.
Í áttundu umferðinni mætast Wadsworth og Tabatabaei í nánast úrslitaskák. Ef Tabatabaei vinnur hefur hann unnið Reykjavíkurskákmótið. Mesta spennan er þó hvort að Tabatabaei nái að klára Reykjavíkurskákmótið með fullu húsi, eitthvað sem hefur ekki gerst áður!
Guðmundur hefur hvítt gegn Norðmanninum Elham Amar. Dagur Ragnarsson mætir Alisher Suleymanov.
Skákskýringar verða á staðnum undir stjórn Hilmir Freyr Heimisson og má gera ráð fyrir að þær hefjist um kl. 18:00 í Stemmu í Hörpu.
Úrslit, paranir og staða:
Hægt er að nálgast skákir á:
Streymarar:
- Hannah Sayce
- Tamara Kadovic
- Matthew Perchard (rás og skýringar hjá Lulurobs)
- Simon Williams
- Keti Tsatsalashvili
Efni frá mótshöldurum:
- Heimasíða mótsins
- Instagram Skáksambandsins
- TikTok Skáksambandsins
- Twitter/X Reykjavik Open
- Facebook síða mótsins
Annað:
















