Kandidatamót FIDE hófust í dag á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!

Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano Caruana, Hikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei Yi, Praggnanandhaa R, Javokhir Sindarov, Andrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.

Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu Jiner, Tan Zhongyi, Aleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju Wenjun. Anna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.

Hér fyrir neðan förum við yfir skákir dagsins og helstu vendingar í báðum flokkum.

Opinn flokkur

Fyrstu skákinni til að ljúka var skák Bluebaum og Wei Yi. Tefldur var Semi-Tarrasch en Þjóðverjinn fékk ekkert út úr byrjuninni. Eftir 21…Dd7 bauð Wei Yi óbeint jafntefli sem Bluebaum þáði.

22.fxe4 og svartur þráskákaði á g4-f3, jafntefli.

Úzbekinn ungi og skemmtilegi Javokhir Sindarov hóf Kandídatamótið af krafti með sigri. Hann var reyndar í bullandi vandræðum lengi vel gegn Andrei Esipenko en sá betur í gegnum flækjur í miðtaflinu.

Mögulega hefur Esipenko eitthvað misreiknað sig á leiðinni í þessa stöðu. Hinn eðlilegi 30…Bc5? Strandar á 31.Hxh6! og svartur er bara að verða mát! Skemmtilegur hrókur á a6 en margir kannast nú við skemmtilegan hrók á a6 í einvígi Jóhanns Hjartarsonar og Viktor Korchnoi í Áskorendaeinvígi þeirra!

Esipenko sá þetta og fórnaði því skiptamun 30…Hxe5 31.Hxe5 en 31…Dc6?? var slakur og menn hvíts tóku algjörlega yfir borðið og sérstaklega hvítu reitina. Skákinni lauk stuttu síðar.

Næstur til að komast á blað var Indverjinn Praggnanandhaa. Hann lagði Anish Giri að velli með hvítu mönnunum. Það er til marks um tímana að það virðist mikilvægara að komast andstæðingnum á óvart en að tefla algjör „mainline“ í dag. Pragg beitti Grand Prix árásinni gegn Giri.

Stórmeistarinn Matthew Sadler benti á það á X að Anish sjálfur hefði talið leikinn sem hann valdi 10…exf5 ekki jafn góðan og stutta hrókun en mögulega hefur hann fundið endurbót eftir að hann gaf út námskeiðið…eða logið í því!

Baráttan fór þó ekki fram í byrjuninni, taflið jafnt en þó ójafnvægi í stöðunni sem er líklega það sem Pragg vildi. Hvítur hafði betri færi lengst af í miðtaflinu og endataflinu en aldrei afgerandi. Giri fór sjálfur af sporinu í endataflinu sem var þá aðeins verra á hann.

36…Rf6?? er bara afleikur. Óljóst er hverju Giri missti af en 37.He6 gefur hvítum yfirburðatafl.

Síðasta skákin til að klárast var viðureign Bandaríkjamannanna Fabiano Caruana og Hikaru Nakamura. Fyrirfram voru þeir taldi með þeim líklegstu til að gera atlögu að sigri á mótinu og því strax mikilvæg viðureign hér á ferðinni.

Caruana mætti greinilega ógnarvel undirbúinn til leiks og náði góðu tímaforskoti snemma tafls. Þrátt fyrir það náði Nakamura að jafna taflið og greinilegt að fleira þarf í dansinn en fagra skóna.

Caruana náði þó yfirhöndinni í endataflinu og setti gríðarlega pressu með mislita biskupa. Nakamura náði að skipta upp á þungu mönnunum og batt vonir við að ná að hanga á jafnteflinu.

Eftir langa baráttu hefði 80…Kc7 verið þrjóskari vörn fyrir svart og mögulega haldið. 80…Ke7?? reyndist tapleikurinn þar sem c-peð Caruana gerði sig klárt fyrir herferð alla leið upp borðið og Nakamura sá sæng sína upp reidda.

Pörun morgundagsins:

Andrey Esipenko — Hikaru Nakamura
Anish Giri — Fabiano Caruana
Wei Yi — Praggnanandhaa R
Javokhir Sindarov — Matthias Bluebaum

Kvennaflokkur:

Stríðsaxirnar voru mun rólegri í kvennaflokki og enduðu allar skákir þar með jafntefli.

Divia Deshmukh og Anna Muzychuk ryksugðu alla kallana af borðinu og fengu upp steindautt endatafl.

Bibisara fékk aðeins hættulegri færi í miðtaflinu með biskupaparið gegn Vaishali en ekkert varð úr því og jafntefli í mislingum í lokin.

Goryachkina var sú fyrsta sem komst í raun í beint dauðfæri á að ná allt að vinningsstöðu. Til þess að vinna Áskorendamóti þarf að sjá svona færi!

24.Rxe5? var leikið en tveggja leikja taktíkin 24.Hxe5 Bxe5 25.Bc5 færir hvítum tvo menn fyrir hrók og hartnær unnið tafl. Ótrúleg yfirsjón og Lagno slapp með skrekkinn.

Zhu Jiner hefur verið á góðu skriði undanfarið og ætlaði sér greinilega stóra hluti í skák dagsins. Hún tefldi af krafti en vantaði smá eldivið á bálið til að klára dæmið. Tan Zhongyi vandanum vaxin í vörninni.

Anna Muzychuk — Tan Zhongyi
Kateryna Lagno — Zhu Jiner
Bibisara Assaubayeva — Aleksandra Goryachkina
Divya Deshmukh — Vaishali Rameshbabu

Tenglar:

- Auglýsing -