Sjöunda umferð er nú í gangi á Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu. Amin Tabatabaei hefur fullt hús og mætir Marc’Andria Maurizzi á efsta borði. Íslendingaslagur (einn af mörgum) er á 5. borði þar sem Vignir Vatnar Stefánsson hefur hvítt gegn Guðmundi Kjartanssyni. Skákin er hér að neðan beint:

_D0A7426

Aðrar skemmtilegar viðureignir í beinni:

Björn Hólm Birkisson hefur hvítt gegn Abhijeet Gupta (2506).

Markús Orri Óskarsson reynir að halda áfram góðu móti, hefur svart gegn Siddharth Singh (2342).

Utan borða í beinni eru líka skemmtilegar viðureignir:

Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson mætir alþjóðlega meistaranum Áskeli Erni Kárasyni

Fjölmiðlakóngurinn Björn Þorfinnsson mætir landsliðskonunni Hallgerði Þorsteindóttur.

Benedikt Briem og nafni hans Þórisson kljást um hvor er besti Benediktinn!

Úrslit, paranir og staða:

Hægt er að nálgast skákir á:

Streymarar:

Efni frá mótshöldurum:

Annað:

- Auglýsing -