Önnur umferð Kandídatamótanna fór fram í dag í opnum- og kvennaflokki. Skemmst er frá því að segja að allar skáir í báðum flokkum enduðu með jafntefli! Það var helst Zhu Jhiner í kvennaflokki sem nagar sig í handarbökin auk Divyu Deshmuk. Lítið var um færi hjá körlunum. Nakamura þurfti aðeins að hafa fyrir sínu jafntefli en segja má að enginn hafi verið í taphættu á neinum tímapunkti.

Staðan fyrir daginn:

Hér fyrir neðan förum við yfir skákir dagsins og helstu atvik.

Opinn flokkur

Segja má að nánast enginn hafi verið nálægt betra tafli á neinum tímapunkti í opna flokknum. Róleg umferð eftir sterka byrjun í gær á mótinu.

Andrey Esipenko — Hikaru Nakamura
Nakamura fékk aftur svart í dag og þurfti að verjast rússnesku svæðanuddi frá Esipenko en náði að halda stöðunni í skefjum og jafntefli niðurstaðan.

Anish Giri — Fabiano Caruana
Caruana er væntanlega sáttur við sína byrjun á þessu móti, vinnur Nakamura í fyrstu umferð og tekur auðvelt jafntefli gegn Giri. 3…Rd7!? var sjaldgæfur leikur og Caruana virðist vera vopnaður ýmsum óhefðbundnum leiðum ef marka má fyrstu tvær skákir hans á mótinu.


Wei Yi — Praggnanandhaa R

Pragg beitti franskri vörn með svörtu gegn Wei Yi og var skák þeirra athyglisverð. Svartur var með eitthvað örlítið betra en jafnteflið var orðið nokkuð ljóst þegar kaup urðu á þungu mönnunum og aðeins mislitir biskupar eftir.


Javokhir Sindarov — Matthias Bluebaum
Fyrsta skákin til að klárast og var þessi dauðari en diskó, þurr Petroffs-byrjun þar sem lítið gerðist.

Kvennaflokkur:

Færin í kvennaflokki voru mun meira afgerandi en allt kom fyrir ekki, jafntefli í öllum skákum.

Anna Muzychuk — Tan Zhongyi

Mjög þurrt Petroff jafntefli

Kateryna Lagno — Zhu Jiner

Zhu Jiner hefur teflt skemmtilega og af mörgum talin sigurstranglegust. Það er í raun magnað að hún sé ekki búin að vinna aðra af tveimur fyrstu skákunum. Zhu gerið allt rétt framan af, fékk betra og vann peð.

19…Rxf3+!? (19…Bc5 jafnvel sterkari) 20.Dxf3 Dd4+ og vinnur peð. Zhu lék svo af sér í vinningsstöðu

Ótrúlegt en satt þá er 27…Hc8?? leikur sem fer úr vinningsstöðu í jafntefli. Hvítur á 28.Rb5!! þar sem 28…Bxb5 leyfir 29.Hc1 (hrókurinn stendur illa á c8!) og 28…Dxb5 þá 29.Hxe6+ og þráskák. Lagno missti af færinu en fékk aftur færi eftir annan slakan leik hjá Zhu og náði þráskákinni.

Bibisara Assaubayeva — Aleksandra Goryachkina

Ryksuguskák, lítið meira um það að segja.

Divya Deshmukh — Vaishali Rameshbabu

Divya hafði vinningsstöðu eftir afleik Vaishali.

Vaishali fann hinsvegar töfrabjörgun hér. 39…Hc1+ 40.Kh2 Dxh3!! 41.gxh3 Rf3+ og svartur heldur hróksendataflinu.

Staðan:

Tenglar:

Um mótið:

Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!

Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano Caruana, Hikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei Yi, Praggnanandhaa R, Javokhir Sindarov, Andrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.

Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu Jiner, Tan Zhongyi, Aleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju Wenjun. Anna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.

- Auglýsing -