Það kom að því að einhver lét ekki íranska ofurstórmeistarann Amin Tabatabaei máta sig en enski stórmeistarinn Matthew Wadsworth gerði jafntefli við hann í dag í næstsíðustu umferð Reykjavíkurskákmótsins í Hörpu. Dagur Ragnarsson er nú orðinn efstur Íslendinga með 6 vinninga og svo koma þrír af okkar stórmeisturum með 5,5 vinning.

_D0A7514

Wadsworth stýrði hvítu mönnunum gegn Tabatabaei og var ekkert að rugga bátnum of mikið í Catalan. Miðtaflið var meira og minna jafnt, e.t.v. örlítið betra á hvítt en ekkert til að tala um. Það skiptist upp í endatafl og báðir tefldu það rétt og engir vinningssénsar í boði fyrir neinn í þessari skák.

Lokaandartök í skák Wadsworth og Tabatabaei

Tabatabaei hefur þá 7,5 vinning og ætti að vera nokkuð öruggur um sigur á mótinu og mætti jafnvel tapa í lokaumferðinni þar sem hann hefur enn vinningsforskot á næstu menn.

_D0A7520

Jiancho Zhou er í hópi skákmanna með 6,5 vinning. Hann lagði Frakkann með langa nafnið að velli en Jiancho teflir nokkuð skemmtilega verður að segjast!

Aðrir sem komust í 6,5 vinning voru gamla brýnið Vasyl Ivanchuk,  Mads Andersen (sem gerði áfangavonir Narva Mai aðeins erfiðari), Tong Xiao (sem lagði Carissu Yip) auk Vahap Sanal.

_D0A7575

Tyrkinn Sanal náði skemmtilegri taktík í sinni skák.

23.Re6! hér vinnur skiptamun útaf máthótuninni á g7.
_D0A7529

Guðmundur Kjartansson var efstur Íslendinga fyrir umferðina en átti ekki góðan dag. Hann tapaði fyrir Norðmanninum Elham Amar. Guðmundur lék sig inn í riddaragaffal í erfiðri stöðu með 33.Kb2??

33…Rdc4 og hvítur gafst upp.

_D0A7544

Dagur Ragnarsson er nú orðinn efstur Íslendinga en hann lagði Kazakan Alisher Suleymanov að velli en sá stórmeistari vann fræga skák gegn Carlsen fyrir ekkert alltof mörgum árum. Átjándi leikur Suleymanov var slakur, 18…Hc8?? en þess í stað stendur svartur betur með 18…Bb5!

Hvítur á góða refsingu hér sem tryggir hartnær unnið tafl, 19.Rb6! og Dagur var með yfirhöndina út skákina og kláraði dæmið.

_D0A7639

Kínverjinn Liu Bei hélt áfram eftirtektarverðri sigurgöngu sinni en hann er nú öruggur með IM-norm. Hann lagði enn einn titilhafann að velli með mjög vandaðri taflmennsku. Greinilegt að Liu Bei er mun sterkari en stigin gefa til kynna.

Myndapakki úr 8. umferð (smellið á örina til hægri til að sjá næstu myndir!)

Reykjavik Open Round 8

Helstu úrslit:

Fyrsti hálfi punkturinn niður hjá Tabatabaei og það í áttundu umferð! Ivanchuk og Zhou halda sér við toppinn með góðum sigrum. Fínn sigur hjá Degi en Guðmundur varð að lúta í dúk.

Staða efstu skákmanna:
.

Tabatabaei efstur og með vinningsforskot. Sex skákmenn hafa 6,5 vinning. Tabatabaei er ansi líklegur, þarf einungis jafntefli með hvítu mönnunum en hann mætir Mads Andersen í lokaumferðinni. Dagur er efstur Íslendinga með 6 vinninga en Guðmundur, Vignir og Hannes hafa 5,5 vinning.

Lokaumferð mótsins sú níunda hefst á morgun, þriðjudag kl. 10:00.

Í lokaumferðinni mætast:

Tabatabaei – Andersen
Cornette – Dagur

Skákskýringar verða á staðnum undir stjórn Hilmir Freyr Heimisson og má gera ráð fyrir að þær hefjist um kl. 12:00 í Stemmu í Hörpu.

Úrslit, paranir og staða:

Hægt er að nálgast skákir á:

Streymarar:

Efni frá mótshöldurum:

Annað:

- Auglýsing -