Á verðlaunaafhendingu Reykjavíkurskákmótsins í gær voru afhent verðlaun í hinum ýmsu stigaflokkum auk aðalverðlauna á mótinu. Keppendur uppskáru fyrir erfiði sitt og sumir unnu í lóttó þegar þeir fengu fría ferð á skákmót í Túnis!

Alls komu fjórir áfangar að alþjóðlegum meistaratitli í hús að þessu sinni. Enginn þeirra var Íslendingur en þessir náðu áfanga á mótinu:

  • FM Tamas Christian-Arrydan (2287) frá Rúmeníu
  • WGM Liya Kurmangaliyeva (2319) frá Kazakhstan
  • FM Sergey Sklokin (2414) frá Armeníu
  • Liu Bei (1963) frá Kína
Áfangahafar gríðarlega glaðir með sinn árangur!

Næst voru veitt óvæntir vinningar en það voru útdráttarverðlaun og vinningurinn ekki af verri endanum, uppihald, gisting og frítt mótsgjald á Djerba mótið sem fram fer í Túnis á hverju ári, næst í febrúar 2027. Björn Þorfinnsson skellti sér á það fyrir ekki alls löngu og bar því vel söguna! Asmund Gilsson frá Noregi og Jón Trausti Harðarson voru þeir heppnu! Það var Mohammed Abdou frá Djerba Festival sem afhenti verðlaunin.

Besti árangur miðað við eigin stig:

Það kom kannski fáum á óvart að Liu Bei (1963) var efstur í þessari kategoríu! Hann performaði 500 stigum yfir ætlaðri getu miðað við elóstig, takk fyrir!

  1. Liu Bei (1963) Kína – 517 stig yfir elóstigum
  2. Eito Nishida (1587) Japan – 372 stig yfir elóstigum
  3. Toma Niori (1639) Japan – 322 stigum yfir elóstigum

Robin Peter Erlendsson Weinert (1442) var í 5. sæti 276 stigum yfir getu enda hækkaði hann um 94 elóstig á mótinu!

Liu Bei vann til fjölda verðlauna fyrir einstakan árangur sinn.

Besti árangur skákmanna með 0-2000 elóstig

Enn þurfti að fá Liu Bei (1963) á sviðið og gaman að sjá Óskar Víking fá verðlaun en hann mun ekki verða í þessari stiga-kategoríu á næsta Reykjavíkurskákmóti, svo mikið er víst!

  1. Toma Matsunaga (1900) – 6 vinningar
  2. Liu Bei (1963) Kína – 5,5 vinningar
  3. Óskar Víkingur Davíðsson (1933) Ísland – 5,5 vinningur
U20U0 verðlaunin

Besti árangur skákmanna með 2001-2200 elóstig

  1. Krishay Jain (2097) Indland – 6,5 vinningar
  2. FM Iren Lyutsinger (2182) FIDE – 6 vinningar
  3. WIM Zhang Xiao (2164) Kína – 6 vinningur

Björn Hólm komst næst Íslendingum í þessari kategoríu, fékk 5,5 vinning í 7. sæti.

Besti árangur skákmanna með 2201-2400 elóstig

  1. IM Krishna Ajay (2354) Indland – 6,5 vinningar
  2. FM Ethan Guo (2364) Bandaríkin – 6,5 vinningar
  3. WGM Liya Kurmangaliyeva (2319) Kazakhstan – 6,5 vinningur

Alekander Domalchuk-Jonasson með 6 vinninga var í 6. sæti og Dagur Ragnarsson með sama vinningafjöld í 8. sæti.

Enginn mynd var af þessum verðlaun í myndapakkanum og á myndinni má sjá Ingvar benda Tómas Tandra á það…vonandi tekur hann ekki illa í þá beiðni!

Besti árangur skákmanna yfir 65 ára

Hér áttum við sigurvegara!

  1. IM Áskell Örn Kárason (2109) Ísland – 5,5 vinningar
  2. Jan T’sas (1906) Belgía – 5 vinningar
  3. Matthijs Dijkstra (2032) Holland – 5 vinningur

Ögmundur Kristinsson var einnig með 5 vinninga og var í 6. sæti.

Besti árangur skákmanna yngri en 16 ára

  1. FM Ethan Guo (2364) Bandaríkin – 6,5 vinningar
  2. Krishay Jain (2097) Indland – 6,5 vinningar
  3. FM Sergey Sklokin (2414) Armenía – 6 vinningur

Besti árangur kvenna

Kvennaflokkurinn var ansi sterkur og jafn í ár en það hefur lengi verið stefna í mótinu að hafa breyða flóru á keppendalistanum! Fern verðlaun voru veitt í kvennaflokki

  1. GM Nino Batsiashvili (2472) Georgía – 6,5 vinningar
  2. WGM Liya Kurmangaliyeva (2097) Kazakhstan – 6,5 vinningar
  3. IM Narva Mai (2413) Eistland – 6 vinningur
  4. IM Stavroula Tsolakidou (2479) Grikkland – 6 vinningar
Kvennaflokkurinn

Aðalverðlaun, sæti 4-10.

Keppendur í þessum sætum voru kallaðir upp og fengu sín verðlaun.

Keppendur í 4-10. sæti

Ivanchuk var þotinn á næsta mót nú þegar en hann lenti í 3. sæti með 7 vinninga og bestu oddastigin.

Jianchao Zhou var einnig ekki viðstaddur en hann varð í 2. sæti með 7,5 vinning.

Síðastur á svið var svo sigurvegarinn árið 2026, Amin Tabatabaei með ótrúlegan árangur 8 vinninga af 9 mögulegum!!

Öll úrslit, stigagróða og fleira má sjá á chess-results.

Þessi var skemmtilega nálægt verðlaunum og mun vafalítið ná í einhver á næstu árum, Karson Lu. Hann átta allavega verðlaun skilið sem mesta krúttið!
- Auglýsing -