Aprílmót Skákfélags Mosfellsbæjar fór fram laugardaginn 11. apríl við góðar aðstæður og var þátttaka með ágætum. Ungir sem aldnir tóku þátt og stemning var með besta móti.

Gauti Páll Jónsson (2293) tefldi af miklu öryggi og vann mótið sannfærandi með fullt hús stiga, 7 vinninga af 7 mögulegum. Dagur Andri Friðgeirsson (2014) fylgdi fast á eftir og endaði í öðru sæti með 6 vinninga.

Í þriðja sæti varð Páll Snædal Andrason (2026) eftir stigaútreikning, en hann hlaut 4,5 vinninga, jafnmarga og Arnar Ingi Njarðarson (1763).

Skákfélag Mosfellsbæjar þakkar öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna og hlakkar til næsta móts í mótaröð félagsins.

Úrslit mótsins má finna á Chess-Results.

Sigurvegarar fyrri móta:

  • Febrúarmót: Gauti Páll Jónsson
  • Marsmót: Rögnvaldur Jónsson
  • Aprílmót: Gauti Páll Jónsson

 

- Auglýsing -