Allar skákir í opna flokknum á Áskorendamótinu á Kýpur enduðu með jafntefli í dag. Eina vinningsskák dagsins kom í kvennaflokki en þar náði Vaishali Rameshbabu að auka við forskot sitt í kvennaflokki og hefur nú vinningsforskot. Vaishali að standa sig betur en próðir hennar, Pragg, en engu að síðu magnaður árangur hjá þeim báðum. Fyrstu systkinin til að komast á áskorendamót. Sindarov gæti fræðilega klárað dæmið í næstu umferð í opna flokknum en hann hefur sem fyrr tveggja vinninga forskot.
Kíkjum á áhugaverðar skákir dagsins í opna flokknum.
Caruana – Sindarov
Caruana reyndi að setja pressu á Sindarov í tæknilegri stöðu þar sem hann treysti á mátt kantpeðs síns á a-línunni til lengri tíma. Sindarov varðiast af miklu öryggi, fórnaði manni fyrir peðin sem Caruana átti eftir og hrókur og riddari gegn hrók dugir ekki til á þessu keppnisstigi þannig að Caruana reyndi ekki einu sinni við það. Jafntefli var það og Sindarov færist nær settu marki.
Giri – Esipenko
Anish Giri er oðinn sá eini sem á möguleika á að ná Sindarov. Hann varð eiginlega að leggja Esipenko að velli í dag. Hollendingurinn fékk örlítið betra en náði ekki að búa til nægjanleg vandamál í tæknistöðu til að knésetja Rússann.
Jafntefli varð í hinum skákunum og Sindarov hefur nú 8,5 vinning af 11 sem er +6 skor en Giri hefur 6,5 vinning, +2 með litla möguleika…Sindarov þarf að misstíga sig verulega og Giri að vinna innbyrðis skák þeirra.
Kvennaflokkur:
Vaishali náði einu vinningsskák dagsins þegar hún lagði þá rússnesku Goryachkina að velli. Í miðtaflinu varð hrókurin Goryachkina skyndilega strandaglópur á e5 reitnum og skiptamunur tapaðist. Þessi e5 reitur svo sannarlega áhrifavaldur hjá Goryachkina sem missti af auðveldum vinningi með taktík á þessum reit í fyrstu umferð gegn Lagno.
Eftir þessar umferð hefur Vaishali 7 vinninga en Muzychuk hefur 6 vinninga ásamt Zhu Jiner og svo tvær með 5,5 vinninga. Vaishali og Jiner mætast í næstu umferð þannig að flækjurnar gætu haldið áfram!
Úrslit dagsins:
Round 11 | Results | FIDE Candidates & Women’s Candidates 2026
🇮🇳 Vaishali Rameshbabu scores the only win of the day! ♟️🔥
#FIDECandidates #FIDEWomensCandidates #FIDE #Chess pic.twitter.com/8LNqQOaP25
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 11, 2026
Staðan:
Standings | After Round 11 | FIDE Candidates & Women’s Candidates 2026
🇺🇿 Javokhir Sindarov leads the FIDE Candidates by 2 points, while 🇮🇳 Vaishali Rameshbabu leads the FIDE Women’s Candidates by 1 point! ♟️🔥#FIDECandidates #FIDEWomensCandidates #Chess #FIDE pic.twitter.com/OchFfuMGKV
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 11, 2026
Frídagur er á morgun 10. apríl en 11. umferðin verður tefld 11. apríl á laugardag.
Tenglar:
Um mótið:
Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!
Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano Caruana, Hikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei Yi, Praggnanandhaa R, Javokhir Sindarov, Andrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.
Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu Jiner, Tan Zhongyi, Aleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju Wenjun. Anna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.
















