Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (Sasha) er að standa sig vel á alþjóðlega mótinu í Sidney í Ástralíu. Teflt er stíft, tvær umferður á dag og náði Sasha í 1,5 vinning í dag og hefur 6 vinninga af 8 o er jafn tveimur öðrum í efsta sæti. Árangurinn fínn en meðalstigin duga ekki til að ná áfanga að stórmeistaratitli. Sasha klára þó vonandi vel og gæti með hagstæðum úrslitum staðið upp einn sem sigurvegari.
Í fyrri skákinni í dag mætti hann pólska stórmeistaranum Jacek Stopa (2342). Skákin var í jafnvægi nánast allan tímann en sá pólski tók séns í endtaflinu með mannsfórn. Skákin hefði engu að síður átt að enda með jafntefli en afleikur Pólverjans í 38. leik sneri taflinu Sasha í vil. Seiglusigur að hætti hússins.
Seinni skákin endaði með jafntefli gegn stórmeistaranum Cristhian Rios Gomez (2385) og hafði Sasha svart. Skákin var í rólegri kantinum og jafnteflið öruggt.
Í lokaumferðinni á morgun hefur Aleksandr hvítt gegn FIDE-meistaranum Reddy Annapureddy (2146) sem er heimamaður. Sasha þarf að treysta á sigur og að úrslit á efsta borði verði hagstæð, jafntefli eða að svartur vinni, í báðum tilvikum myndi Sasha vinna mótið.
- Skákir á lichess
- Heimasíða mótsins (úrslit, paranir, staða og dagskrá)
Sydney International Open Championships heitir mótið sem Aleksandr teflir á. Alls taka 37 skákmenn þátt og er Aleksandr númer 5 í styrkleikaröðinni en fimm stórmeistarar eru meðal þátttakenda.
















