Skólaskákmót Kragans og Suðurnesja fór fram í Miðgarði Garðabæ fimmtudaginn 9. apríl sl. Í öllum flokkum var keppt um þrjú sæti á landsmótinu í Ólafsvík.
Daginn áður hafði Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar opnað nýja álmu í húsinu og var keppni á miðsstigi fyrsti viðburðurinn sem fór fram þar. Landsliðsflokkur Skákþings Íslands mun fara fram í þessari álmu í maí og var eftir því tekið hvað aðstæður voru góðar til taflmennsku.
1. – 4. bekkur
Nói Ingvaldsson vann 6 af fyrstu 6 skákunum sínum og tryggði sér svo sigurinn með jafntefli í lokaumferðinni gegn Þorvaldi Orra Haraldssyni sem tryggði sér þriðja sætið með jafnteflinu. Baráttan um annað sætið var milli Jakobs Þórs Emilssonar og Rúnars Ísaks Stefánssonar en báðir höfðu aðeins tapað gegn Nóa. Jakob vann spennandi skák og Rúnar því óheppinn að sitja eftir en hann vann 5 af fyrstu 5 skákum sínum og var með hæsta tie break allra keppenda.
Fulltrúar á landsmóti verða því:
- Nói Ingvaldsson Hvaleyrarskóla 6,5v
- Jakob Þór Emilsson Hofsstaðaskóla 6v
- Þorvaldur Orri Haraldsson Hofsstaðaskóla 5,5v

5.-7. bekkur
Þessi flokkur snerist upp í einvígi milli Halldóru Jónsdóttur og Katrínar Óskar Tómasdóttur. Þær mættust í 5. umferð í skák sem reyndist úrslitaskákin í mótinu.
Baráttan um þriðja sæti var virkilega hörð og enduðu fjórir jafnir og þurfti oddastig til þess að greina á milli. Jökull Már Ingvarsson var hlutskarpastur þar og hlýtur síðasta sætið.
Fulltrúar á miðsstigi verða því:
- Halldóra Jónsdóttir Smáraskóli 6,5v
- Katrín Ósk Tómasdóttir Hvaleyrarskóli 6v
- Jökull Má Ingvarsson Helgafellsskóli 5v

8.-10. bekkur
Í elsta flokknum var eini keppandinn sem náði fullu húsi. Örvar Hólm Brynjarsson er enn aðeins í 8. bekk en tryggði sér örugglega sigur með 7 vinninga í 7 skákum. Nokkuð var um jafntefli hjá þeim sem voru að berjast um næstu sæti og munaði því mjög litlu á milli þeirra. Tristan Nash Alguna Openia tapaði bara gegn Örvari og leyfði eitt jafntefli til viðbótar. Það dugði fyrir 2. sætinu. Grípa þurfti til oddastiga til að útkljá þriðja sæti en þar var hlutskarpastur Bartosz Baginski.
Fulltrúar á landsmótinu verða því:
- Örvar Hólm Brynjarsson Lindaskóli 7v
- Tristan Nash Alguna Openia Hvaleyrarskóli 5,5v
- Bartosz Baginski Víðisstaðaskóli 5v














