Mánudaginn 13. apríl kl. 19 er komið að næsta fyrirlestri í fyrirlestraröð Taflfélags Garðabæjar í Miðgarði. Nú stígur á stokk alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson og ætlar hann að fara í allt aðra átt en fyrri fyrirlesarar og vera meira á andlegu nótunum undir yfirskriftinni:

Sagan að þunglynda maurnum: Heilræði Húnsins um hugarfar og sjálfstraust við skákborðið

Í kjölfarið verður hefðbundið skákkvöld sem hefst að fyrirlestri loknum þar sem við teflum 3+2 hraðskák.

Allir velkomnir – frítt inn.

- Auglýsing -