Allar skákir í opna flokknum á Áskorendamótinu á Kýpur enduðu með jafntefli í dag eins og í gær og virðst keppendur eilítið vera að haltra að rásmarkinu enda að litlu að keppa. Anish Giri heldur í veika von um að ná Sindarov en missti af frábæru tækifæri í umferð dagsins til að láta Úzbekann allavega svitna. Það mistókst og því þarft allt að ganga upp í lokaumferðunum. Giri mætir reyndar Sindarov á morgun sem gæti hleypt smá spennu í lokametrana. Í kvennaflokki halda sveiflurnar áfram og sveifludrottningin Zhu Jiner náði í skottið á Vaishali með því að leggja hana að velli. Assubayeva og Muzychuk eru svo hálfum vinningi á eftir þeim. Spennandi lokaumferðir framundan!

Kíkjum á helstu skákir dagsins í opna flokknum.

Sindarov – Nakamura

Sindarov ætlar greinilega ekki að taka neinar áhættur og bara „pulsa sig út“. Hann reyndi ekkert með hvítu gegn Nakamura í dag eins og sést best á að hann hafði enn 1:51 á klukkunni í 32. leik þegar skákinni lauk, langfyrst af öllum!

Wei Yi – Giri

Anish Giri var með svart og fékk strax þægilegra tafl. Í miðtaflinu var riddari hans á d5 algjört stórveldi, það mikið að Wei Yi fórnaði skiptamun á hann. Giri fékk marga sénsa.

32…De3 er -6 hérna. He8 er að koma og c7 má alltaf svara með Dc1+ í varíöntum þar sem loftað er út.

Barningurinn hélt áfram og staða Giri var fræðilega unnin en nánast ómögulegt að finna rétta planið og Giri gerði það ekki með galopna kóngsstöðu. Jafntefli og Sindarov því enn með 2 vinninga forskot.

Jafntefli varð í hinum skákunum sem skiptu litlu máil og Sindarov hefur nú 9 vinninga af 12 sem er enn +6 skor en Giri hefur 7 vinninga, +2 með, verður að leggja Sindarov í næstu umferð og vonast eftir tapi hans í lokaumferðinni einnig.

Kvennaflokkur:

Sveiflurnar héldu áfram eins og áður sagði í kvennaflokknum!

Vaishali – Zhu Jiner

Zhu Jiner er búinn að fara í og úr toppsætinu allt mótið. Alltaf þegar hún kemst á skrið tapar hún og dæmið endurtekur sig. Nú eru aðeins tvær umferðir eftir og því ekki lengur í boði að misstíga sig!

Vaishali missteig sig í miðtaflinu. Aðgengi svarta riddarans að d5 reitnum varð of auðvelt og aukinheldur fékk svartur peð með í kaupunum. Afleikur í 36. hjálpaði svo ekki og gríðarlega mikilvægur sigur í höfn hjá Zhu Jiner.

Þar sem Praggnanandhaa er úr leik í opna flokknum þá er orðið útilokað að við fáum systkini sem sigurvegara í báðum flokkum. Hinsvegar er enn möguleiki á að við fáum kærustupar! Bibisara Assubayeva hefur verið að birta myndir af sér og Sindarov og víst ekkert leyndarmál þar á ferð. Bibisara blandaði sér í baráttuna með sigri í 11. umferðinni og er hálfum vinningi frá oddafiskunum tveimur.

Bibisara beitti afbrigðinu sem Vignir Vatnar hefur mælt með á síðu sinni og margir notað með góðum árangri, meðal annars undirritaður í góðri skák á Skákþingi Reykjavíkur 2025. Sama staða og í 13. leik í þessari skák! Bibisara fór aðeins útaf sporinu í miðtaflinu en náði vopnum aftur eftir hörkubaráttu og náði seiglusigri sem kemur henni í færi.

Eftir þessar umferð hefur Vaishali 7 vinninga ásamt Zhu Jiner en Muzychuk og Bibisara hafa 6,5 vinning. Bibisara og Anna mætast í 13. umferð í hreinni úrslitaskák um hvor þeirra getur veitt Vaishali og Jiner keppni.

Úrslit dagsins:

Staðan:

Frídagur er á morgun 13. apríl en 13. umferðin verður tefld 14. apríl á þriðjudag.

Tenglar:

Um mótið:

Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!

Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano CaruanaHikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei YiPraggnanandhaa RJavokhir SindarovAndrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.

Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu JinerTan ZhongyiAleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju WenjunAnna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.

- Auglýsing -