Íslensku keppendurnir áttu glimrandi dag á Evrópumóti einstaklinga í Katowice í Póllandi. Allir fjórir íslensku keppendurnir unnu sínar skákir en markverðastur af þeim var að sjálfsögðu sigur Vignis Vatnars Stefánssonar á Evrópumeistaranum frá því árið 2024, Serbanum Aleksandar Indjic (2616).
Vignir hafði hvítt og upp kom Bogo-indversk vörn, í annað skiptið á þessu móti. Vignir var nokkuð klár í þessa línu og nýtti frídaginn vel, sá nokkrar skákir með þessu. Gaf eins og oft Birki Ísak gott kredit fyrir aðstoðina.
Vignir fékk þægilega stöðu en miðtaflið virtist mögulega vera að fjara eilítið út. Peðsfórn eða tap Indjic í drottningarlausa miðtaflinu virkaði engan veginn og Vignir sat uppi með umframpeð eftir viðskiptin. Jankovic gaf Vigni gott hrós fyrir tæknina í kjölfarið. Sjá má Vigni fara yfir skákina með Jankovic í myndbandinu hér að neðan, geggjuð frammistaða hjá Vigni í skákinni og viðtalinu!
Viðtal við Vigni á ECU-TV

Hannes náði að stýra sinni skák gegn hinni pólsku WFM Martyna Starosta (2199) í drottningarlaust miðtafl þar sem hann náði biskupaparinu úr smá flækjum, náði að breyta því í umframpeð og svo unnið hróksendtafl.

Hilmir tefldi einnig við pólska stúlku, WFM Emilia Sprezeczka (2066). Hilmir hafði svart og fék alla stöðuna og parið með svörtu úr frönsku vörninni. Hilmir fékk auk þess mun meira rými í miðtaflinu en missti aðeins þráðinn í 34. leik og „redúseraði primitíft“.
Sú pólska komin inn í skákina en gaf furðufljótt eftir í þeirri stöðu og þurfti að verja hróksendatafl peði undir sem var of erfitt verkefni og sigur Hilmis í hús.

Josef fékk algjört yfirburðatafl með einföldu, gömlu og góðu „skákskóla-afbrigði“ gegn Grunfelds-vörn. Pólskur andstæðingur Josefs komst aldrei úr skotgröfunum og var orðinn mát skömmu eftir tuttugu leiki.
Staðan þannig að Vignir hefur 4,5 vinning af 5 mögulegum, er í jöfnu efsta sæti á vinningum, 6. sæti á stigum, enginn hefur fullt hús. Hannes og Hilmir hafa 3 vinninga og Josef 2 vinninga.
Í 6. umferð hefur Vignir svart gegn ítalska stórmeistaranum Lorenzo Lodici (2601) á þriðja borði! Hilmir hefur hvítt gegn Armenanum Robert Piliposyan (2420), Hannes svart gegn Pólverjanum Oleksii Nakonechnyi (2296). Loks hefur Josef svart gegn Ísraelanum Guy Gov (2222). Sjötta umferðin hefst klukkan 13:00 á morgun.
Um mótið:
Evrópumót einstaklinga fer fram í Katowice í Póllandi 7-19. apríl en teflt er á hverjum degi en frídagar 11. og 17. apríl. Tefldar eru 11 umferðir um Evrópumeistaratitilinn og jafnframt sæti á Heimsbikarmótinu, mikið í húfi. Sætin eru eftirsótt þar sem Heimsbikarmótið er ávallt eitt vinsælasta mótið þegar það fer fram (annað hvert ár) og jafnframt getur það verið leið til að komast á Áskorendamótið (sem er nú í gangi).
Alls taka 501 skákmenn þátt á mótinu og eru íslensku keppendurnir fjórir. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2512) er númer 74 í stigaröðinni, GM Hannes Hlífar Stefánsson (2414) er númer 154 í stigaröðinni, IM Hilmir Freyr Heimisson (2297) er númer í 256 stigaröðinni og Josef Omarsson (2045) er númer 400 í stigaröðinni. Stigahæstur er Igor Kovalenko (2685) frá Úkraínu.
Íslensku keppendurnir eru (sjá myndband):


















