Suðurlandsmótið í Skólaskák fór fram þann 9.apríl á Flúðum. Mættir voru um 50 keppendur og teflt var við góðar aðstæður í félagsheimili hrunamanna.
Tefldar voru 7 skákir í þremur aldursflokkum. Efsta sæti í hverjum flokki gaf sæti á landsmótinu í skólaskák sem verður haldið helgina 9-10 maí í Ólafsvík.
1-4 bekkur

Í yngsta flokknum voru ellefu keppendur skráðir til leiks og voru það allt nemendur í Flúðaskóla sem hrepptu verðlaunsæti. Brynjar Logi og Hákon Orri enduðu báðir með 6 vinninga en Brynjar Logi endaði ofar á oddastigum. Þriðja sæti kom í hlut Lauri Fannars sem endaði með 5 vinninga.
🥇Brynjar Logi Sigurjónsson 6
🥈Hákon Orri Scheving Atlason 6
🥉Lauri Fannar Hjaltason 5

1-4. bekkur – Lokastaðan eftir 7.umferðir
5-7.bekkur

Í fimmta til sjöunda bekk voru fjórtán keppenndur mættir til leiks. Það var Jökull Pálsson sem hreinsaði sinn flokk og endaði með fullt hús. Í öðru sæti með 5 vinninga var Loftur Þorsteinsson. Rétt á eftir honum með 4½ vinning var Kacper Jerzy
🥇Jökull Pálsson 7
🥈Loftur Þorsteinsson 5
🥉Kacper Jerzy Sojka 4½

5-7. bekkur – Lokastaðan eftir 7.umferðir
8-10.bekkur

Í 8-10 bekk voru 21 keppendur skráðir til leiks. Eftir 7.umferðir enduðu þrír keppendur efstir með 5 og hálfan vinning. Eftir stigaútreiking reyndist Magnús Tryggvi efstur aðeins hálfu stigi á eftir næsta manni.
- Magnús Tryggvi Birgisson 5½
- Unnsteinn Magni Arnarsson 5½
- Davíð Bogi Sigmundsson 5½

8-10 bekkur – Lokastaðan eftir 7.umferðir












