Landsliðsmaðurinn og alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson var með fullt hús eftir tvær umferðir en varð að lúta í dúk í þriðju umferð gegn sterkum indverskum alþjóðlegum meistara. Landsliðskonan og FIDE-meistari kvenna Hallgerður Þorsteinsdóttir gerði jafntefli í sinni skák og komst á blað.

Dagur hafði svart gegn alþjóðlega meistaranum Ghosh Aronyak (2533). Grunfelds-vörnin „transposaði“ yfir í hálfgerða Benoni stöðu og Indverjinn fann skemmtilega skiptamunsfórn sem setti mikla pressu á stöðu Dags, pressu sem hann stóðst ekki. Fyrsta tap Dags á mótinu.

Hallgerður hafði svart gegn James Watson (1876) frá Ástralíu og endaði skákin með jafntefli.

Dagur með 2 af 3 en Hallgerður hefur nú 1/2 af 3. Í fjórðu umferð sem fram fer á morgun klukkan 13:00 að staðartíma hefur Dagur hvítt gegn FIDE meistaranum Kristopher Reyndar (2074) frá Indónesíu. Hallgerður hefur hvítt gegn ungum Indverja Joshi Aurki (1889).

Um mótið:

241 skákmaður tekur þátt í A-flokki á Bangkok Open. Dagur er númer 45 í stigaröðinni en Hallgerður 127. Stigahæstur keppenda er „Lókurinn“ Loek van Wely en þekktastur keppenda og sá sem hefur oftast unnið mótið er önnur goðsögn, Nigel Short. Tefld er ein skák á dag, níu dagar.

- Auglýsing -