Stórmeistarinn og Íslandsmeistarinn í skák, Vignir Vatnar Stefánsson er orðinn einn efstur á Evrópumóti einstaklinga í skák að loknum sex umferðum. Í dag lagði Vignir íalska stórmeistarinn og landsliðsmanninn Lorenzo Lodici (2601). Mögnuð staða á mótinu, sérstaklega í ljósi þess að 73 skákmenn eru stigahærri en Vignir á mótinu sem er ógnarsterkt! Hannes náði einnig sigri í sinni skák, Hilmir gerði jafntefli en Josef tapaði sinni skák.

Vignir við upphaf 6. umferð á EM 2026 í Katowice. (Mynd: GB)

Vignir hafði svart gegn Ítalanum og upp kom Berlínarvörn og Vignir greinilega með dagsskipunina að tefla traust. Ítalinn hafði í raun ekkert fram að færa í byrjuninni og Vignir jafnaði taflið auðveldlega. Fljótlega komu hópuppskipti, flest á f-línunni. Þá ofsaltaði Ítalinn pastað.

27.Hf7? var yfirsjón, Vignir skaut inn 27…Hxg2+ 28.Kxg2 Dxf7 og skyndilega var Vignir að tefla frítt til vinnings peði yfir í drottningarendatafli með nánast enga áhættu á móti. Fór svo að Vignir lét umframpeðið telja. Tækni heilt yfir góð, vissulega missti Vignir af nokkrum tölvuleiðum sem eru erfiðar útreiknings en Vignir tefldi úrvinnsluna af mikilli skynsemi og hafði vaðið fyrir neðan sig. Ítalinn varð að gefa þegar a-peð Vignis var á leið upp í borð!

Frábær úrslit og önnur borð enduðu með hagstæðum úrslitum þannig að okkar maður er í efsta sæti, eitthvað sem verður að teljast sturlað í ljósi styrkleika mótsins og rásröð Vignis! Í útsendingu ECU í dag var kíkt annað slagið inn á skák Vignis.

Útsending ECU frá 6. umferð:

Hannes náði að leggja pólskan CM að velli með svörtu. Hannes náði að halda taflinu á stöðulegum nótum lengst af, vann peð í miðtaflinu eftir að hafa hrifsað frumkvæðið og náði að sigla umframpeðinu heim í endatafli. Fín skák hjá Hannesi sem er vonandi að finna sig, tvær sigurskákir í röð núna.

Hilmir tefldi við armenskan alþjóðlegan meistara og var skynsamur, tefldi uppskiptaafbrigðið í frakkanum, leiðinlegt afbrigði fyrir svartan þar sem hvítur getur þæft taflið endalaust. Hilmir gerði það, var peði yfir í hróksendatafli en staðan alltaf fræðilegt jafntefli og Armeninn var vandanum vaxinn og lenti aldrei í vandræðum.

Josef við upphaf 6. umferð á EM einstaklinga í Katowice 2026.

Josef mætti ísraelskum IM Guy Gov. Josef fékk fína stöðu með svörtu í Sveshnikov sem hann þekkir vel. Sá ísraelski tefldi of frumlega og lenti í vandræðum, fxe3 leikur hvíts og taflmennskan í kjölfarið var í raun stórfurðuleg. Josef með sókn og stóð til vinnings á kafla.

39…Da5? missti yfirhöndina aðeins en 39…Da8! hefði verið skemmtilegur, svartur nær í kjölfarið c-línunni og peðinu og hvítur getur lítið gert. Josef hefði kannski getað nýtt tímaforskot sitt betur þarna. Hvítur náði að halda c-peðinu og fljótlega missti Josef tök á stöðunni, svekkjandi tap.

Staða efstu manna!

Ekki leiðinlegt að sjá stöðutöfluna! Vignir einn efstur á undan fjölda sterkra og þekktra stórmeistara. Vignir hefur 5,5 vinning af 6 mögulegum, EINN EFTSTUR! Hannes hefur 4 vinning, Hilmir 3,5 vinning og Josef 2 vinninga.

Í 7. umferð hefur Vignir hvítt gegn spænska stórmeistaranum David Anton Guijarro (2656) á efsta borði! Hannes hefur hvítt gegn pólska stórmeistaranum Robert Kempinski (2527), Hilmir svart gegn Pólverjanum Krzysztof Jakubowski (2434) en hann er stórmeistari. Loks hefur Josef hvítt gegn heimastúlkunni Liwia Babinska (1763). Sjöunda umferðin hefst klukkan 13:00 á morgun.

Um mótið:

Evrópumót einstaklinga fer fram í Katowice í Póllandi 7-19. apríl en teflt er á hverjum degi en frídagar 11. og 17. apríl. Tefldar eru 11 umferðir um Evrópumeistaratitilinn og jafnframt sæti á Heimsbikarmótinu, mikið í húfi. Sætin eru eftirsótt þar sem Heimsbikarmótið er ávallt eitt vinsælasta mótið þegar það fer fram (annað hvert ár) og jafnframt getur það verið leið til að komast á Áskorendamótið (sem er nú í gangi).

Alls taka 501 skákmenn þátt á mótinu og eru íslensku keppendurnir fjórir. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2512) er númer 74 í stigaröðinni, GM Hannes Hlífar Stefánsson (2414) er númer 154 í stigaröðinni, IM Hilmir Freyr Heimisson (2297) er númer í 256 stigaröðinni og Josef Omarsson (2045) er númer 400 í stigaröðinni. Stigahæstur er Igor Kovalenko (2685) frá Úkraínu.

Íslensku keppendurnir eru (sjá myndband):

 

 

- Auglýsing -