Vignir Vatnar Stefánsson var í þeirri ótrúlegu stöðu fyrir sjöundu umferðina á EM einstaklinga í Póllandi að vera einn efstur á mótinu! Vignir hafði 5,5 vinning af 6 á undan þéttum pakka með 5 vinninga. Því miður tókst sterkasta skákmanni Spánverja að stoppa sigurgöngu Vignis. Staða Vignis er engu að síður góð og barátta um sæti á Heimsbikarmótinu í skák raunhæfur möguleiki. Heilt yfir var sjöunda umferðin ekki góð fyrir okkar keppendur þar sem Hannes Hlífar og Hilmir Freyr töpuðu líka sínum skákum en Josef Omarsson vann sína skák og eini Íslendingurinn sem komst á blað í umferðinni.
Fram að þessu hefur mótið í raun gengið eins og í sögu hjá Vigni. Hér má sjá DIML (Day in my life) frá Vigni á Instagram:
View this post on Instagram
Vignir hafði hvítt í sjöundu umferðinni gegn David Anton Guijarro (2656). Ekkert var að stöðu hvíts en spekingarnir út í sal (lesist miðaldra titilhafar á Facebook-spjalli) höfðu áhyggjur af tímanotkn Vignis snemma tafls. Vignir fór fyrst af sporinu í 16. leik
Hér hefði tölvan viljað sjá 17.Rd2 og hvítur á að hafa örlítið betra tafl. Auðvelt að sjá í tölvunni, hvítur þarf að reikna nokkra möguleika, t.d. að fórna peðinu á e5 í vissum varíöntum fyrir gott biskupapar…semsagt auðveldara á hliðarlínunni! Vignir lék mannlegum leik 17.Be2 og vildi ná að hróka sem fyrst. Hér fékk David Anton sterkt frumkvæði, fann flesta bestu leikina og vann peð.
Skákinni var þó engan veginn lokið. Vignir vann peðið til baka en staðan var krefjandi og tíminn farinn að verða af skornum skammti. Spánverjinn náði aftur að vinna peð og komst í endatafl sem er líklegast unnið á hann og Vignir kom engum vörnum við. Vissulega svekkjandi tap en fyrirfram hefði Vignir alltaf samþykkt 2 af 3 gegn Indjic, Lodici og Guijarro, allt skákmenn með yfir 2600 elóstig!
Vignir brá eitthvað fyrir í útsendingu dagsins sem má nálgast hér:

Hannes mætti heimamanninum og stórmeistaranum Robert Kempinski (2527). Hannes hafði hvítt upp kom drottningarindverji. Hannes fékk úr engu að moða í byrjuninni og staðan lengst af í jafnvægi en kannsi aðeins þægilegri á svartan. Eftir uppskipti virtist jafnteflið í augsýn en eftir tímamörkin komu tveir slakir leikir hjá Hannesi, 41.Rf2? og 44.h3?? og Hannes varð að lúta í dúk.

Hilmir tapaði sinni skák með svart gegn heimamanni, alþjóðlegum meistara. Mikill barningur lengst af og Hilmir alltaf mjög nálægt því að jafna taflið algjörlega. Í tímahraki missir Hilmir stjórn á stöðunni og þegar tímamörkunum var náð var orðið of seint að bjarga taflinu.

Josef mætti pólskri heimastelpu og fékk mun þægilegra tafl með hvítu úr byrjuninni. Í miðtaflinu náði Josef ekki alveg að nýta stöðuyfirburðina en náði umframpeði þó erfitt væri að vinna úr því. Smátt og smátt kom styrkleikamunurinn í ljós og svartur náði ekki að verja stöðuna.
Vignir hefur eftir umferðina 5,5 vinning af 7 mögulegum en þarft ekkert að örvænta þrátt fyrir tapið, er í 5-26. sæti. Hannes hefur 4 vinning, Hilmir 3,5 vinning og Josef 3 vinninga.
Í 8. umferð hefur Vignir svart gegn franska stórmeistaranum Maxime Lagarde (2621). Hannes hefur svart gegn pólska FIDE-meistaranum Patryk Rekuc (2280) sem Josef lagði svo skemmtilega að velli fyrr á mótinu. Hilmir hefur hvítt gegn úkraínskum skákmanni Andriy Palamarchuk (2110). Loks hefur Josef svart gegn kandídatameistara frá Luxembúrg Stefan Maltezeanu (2245). Áttunda umferðin hefst klukkan 13:00 á morgun.
Um mótið:
Evrópumót einstaklinga fer fram í Katowice í Póllandi 7-19. apríl en teflt er á hverjum degi en frídagar 11. og 17. apríl. Tefldar eru 11 umferðir um Evrópumeistaratitilinn og jafnframt sæti á Heimsbikarmótinu, mikið í húfi. Sætin eru eftirsótt þar sem Heimsbikarmótið er ávallt eitt vinsælasta mótið þegar það fer fram (annað hvert ár) og jafnframt getur það verið leið til að komast á Áskorendamótið (sem er nú í gangi).
Alls taka 501 skákmenn þátt á mótinu og eru íslensku keppendurnir fjórir. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2512) er númer 74 í stigaröðinni, GM Hannes Hlífar Stefánsson (2414) er númer 154 í stigaröðinni, IM Hilmir Freyr Heimisson (2297) er númer í 256 stigaröðinni og Josef Omarsson (2045) er númer 400 í stigaröðinni. Stigahæstur er Igor Kovalenko (2685) frá Úkraínu.
Íslensku keppendurnir eru (sjá myndband):

















