Ótrúlegt mót hjá Sindarov! (Mynd: FIDE)

Úzbekinn Javokhir Sindarov er sigurvegari á Kandídatamótinu 2026 á Kýpur. Þar sem Anish Giri mistókst að leggja hann að velli í 13. umferðinni í dag getur enginn náð honum að vinningum. Frábær árangur hjá þessm skemmtilega skákmanni sem mun jafnframt slá metið yfir flesta vinninga í 14 umferða áskorendamóti ef hann tapar ekki í lokaumferðinni á morgun. Kvennaflokkurinn er æsispennandi sú indverska, Vaishali gerði jafntefli í sinni skák og er efst ásamt Bibisara Assubayeva sem Muzychuk að velli. Rússíbaninn hélt áfram hjá Zhu Jiner sem datt af toppnum eftir tap í dag og er von hennar um að komast í bráðabana veik með aðeins eina umferð eftir.

Opinn flokkur:

Giri – Sindarov 

Þetta var eina skákin sem skipti máli í flokknum. Þessir tveir voru þeir einu sem gátu fræðilega unnið flokkinn. Giri varð að vinna og treysta svo á hagstæð úrslit í lokaumferðinni.

Skemmst er frá því að segja að Giri varð ekkert ágengt og fékk engin færi. Báðir tefldu þeir nánast 100% „rétta“ skák og ekkert í boði fyrir neinn til að vinna úr. Þetta örugga jafntefli með svörtu tryggir það að Sindarov mun berjast um Heimsmeistaratitilinn við Gukesh síðar á árinu.

Wei Yi var sá eini sem vann sína skák en það skipti litlu. Sindarov hefur 9,5 vinninga af 13 fyrir lokaumferðina en það er ennþá +6 skor. Giri fer í 7,5 vinning, +2 með en dugir ekki til að þessu sinni.

Kvennaflokkur:

Sveiflurnar héldu áfram þvílík spenna! Fyrir umferðina voru Vaishali og Zhu Jiner efsta og jafnar en Bibisara og Muzychuk hálfum vinningi á eftir.

Zhu Jiner – Goryackhina

Zhu Jiner hefur að mörgu leiti teflt best á köflum í flokknum en jafnframt verið mistækust. Alltaf þegar hún er í góðu færi eftir 1-2 vinningsskákir kemur tapskák á slæmum tíma. Tapskákin í dag hefði varla getað komið á verri tíma.

Á tíma virtist hún eiga ágætis sénsa, peði yfir að kæfa niður mótspil Goryachkina. Það mistókst og merkilegt nokk þá var 51.He5?? allt að því tapleikurinn…magnað því þessi reitur hefur verið mikill áhrifavaldur í skákum Goryachkina.

Bibisara Assaubayeva náði í skottið á Vaishali á toppnum með því að leggja Muzychuk í úrslitaskák á milli þeirra hvor myndi eiga möguleika í lokaumferðinni.  Bibisara gat nánast pressað að vild eftir velheppnaða byrjun. Hvítur hafði umframpeð en svartur hélt í vonina að mislitir biskupar myndu bjarga jafnteflinu.  Fín tækni hjá Bibisara sem kemur sér í dauðafæri. Það væri virkilega athyglisvert ef áskorendurnir tvær væru kærustupar!

Skák Vaishali gegn Tan Zhongyi endaði með jafntefli, Vaishali hafði svart og þurfti að verja verra tafl en var aldrei í mikilli taphættu.

Fyrir lokafumerðina hefur Vaishali 7,5 vinning ásamt Bibisara en Zhu Jiner er hálfum vinningi á eftir og þarf að treysta á hagstæð úrslit og líklega ekki meira en bráðabani í boði fyrir hana.

Úrslit dagsins:

Staðan:

Lokaumferðin er á morgun 15. apríl.

Tenglar:

Um mótið:

Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!

Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano CaruanaHikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei YiPraggnanandhaa RJavokhir SindarovAndrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.

Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu JinerTan ZhongyiAleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju WenjunAnna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.

- Auglýsing -