Landsliðsmaðurinn og alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson vann nokkuð þægilegan sigur í fjórðu umferð á opna Tælenska, alþjóðlegu móti í Bangkok. Dagur hefur þrjá vinninga að loknum fjórum umferðum og fær erfiðan andstæðing í næstu umferð. Landsliðskonan og FIDE-meistari kvenna Hallgerður Þorsteinsdóttir gerði aftur jafntefli í sinni skák.

Dagur hafði hvítt gegn indónesískum FIDE-meistara Kristopher Reyndard (2074). Miðað við taflmennskuna fékkst þessi titill í Cheerios-pakka. Dagur beitti „Rimaskóla-afbrigðinu“ gegn Sikileyjarvörn en Dagur hefur verið ábyrgur fyrir meirihluta af notkun á þessu Dd3 afbrigði gegn Sikileyjarvörn.
Reynard reyndi ekki mikið á okkar mann og valdað frípeð á d-línunni gerði skákina að einhverskonar æfingu í raðtækni. Taktíkin í lokin samt smekkleg og pottþétt að andstæðingur Dags sá ekki De7+!

Hallgerður hafði hvítt gegn ungum Indverja Joshi Aurki (1889) og endaði skákin með jafntefli.
Í fimmtu umferð á morgun mætir Dagur GM Evgeny Romanov (2576) sem teflir nú fyrir Norður-Makedóna. Romanov er mjög sterkur skákmaður, sterkari en stigin gefa til kynna. Hallgerður fær annan U18 Indverja Kollipara (1885) en ungu Indverjarnir eru yfirleitt erfiðir andstæðingar, góðir og vantar stig sem gefa til kynna styrkleika þeirra.
- Heimasíða mótsins
- Skákir á lichess (24 efstu borð)
- Úrslit á chess-results
- Myndasíða mótsins
Um mótið:
241 skákmaður tekur þátt í A-flokki á Bangkok Open. Dagur er númer 45 í stigaröðinni en Hallgerður 127. Stigahæstur keppenda er „Lókurinn“ Loek van Wely en þekktastur keppenda og sá sem hefur oftast unnið mótið er önnur goðsögn, Nigel Short. Tefld er ein skák á dag, níu dagar.














