Vignir Vatnar heldur skákmót í samstarfi við EpicBet og Nínu. Fyrsta mótið fór fram 31. mars síðastliðinn, beint eftir Reykjavíkurskákmótið og var frábær stemmning og færri komust að en vildu!

Myndbrot frá síðasta móti:

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Vignir Vatnar (@vignirvatnar)

Úrslit úr fyrsta mótinu má nálgast á Chess-results
Næsta mót er haldið núna þriðjudaginn 14. apríl klukkan 20:00 á Hverfisgötu 20 (Nína Bar)
 

Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2. Athugið! aðeins 50 manns geta tekið þátt og mótið er eingöngu fyrir 18 ára og eldri.

Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga og þátttökugjald er 2000kr. (bjór fylgir með skráningu.) Áskrifendur af vignirvatnar.is þurfa ekki að borga þátttökugjald.

Frábær tilboð verða á barnum.

Verðlaun eru veitt fyrir efstu 3 sæti.

Einnig verða veitt verðlaun fyrir efsta sæti í eftirfarandi flokkum.

  • U-2000 ELO 

  • U-1800 ELO

  • Stigalaus

Ef einhverjar spurningar vakna – ekki hika við að hafa samband á vignirvatnar.is@gmail.com

Skráningu lýkur í hádeginu á þriðjudeginum.

- Auglýsing -