Vignir Vatnar Stefánsson tapaði sinni annarri skák í röð eftir frábæra byrjun á EM einstaklinga í Póllandi. Þeir Hannes Hlífar og Hilmir Freyr unnu sínar skákir og Josef Omarsson gerði jafntefil gegn sterkum andstæðingi.
Verkefnið hjá Vigni í dag var svart Frakkanum Maxime Lagarde (2621). Vignir beitti Berlínarafbriðginu aftur sem gaf vel fyrr á mótinu en Vignir er þó eilítið ryðgður í því. Lagarde tefldi hratt í byrjun og Ba4 var leikur sem Vignir hafði ekki skoðað lengi og lenti Vignir snemma í að fá verri tíma.
Staðan varð fljótt erfið og þegar Vignir sá lítið betra en að setja riddarann í bakpokann á b7 þá var lítið eftir. Góð skák hjá Frakkanum en Vignir þarf nú bara að núllstill og klára mótið með stæl!
Útsending ECU frá 8. umferð:

Hannes lagði Pólverjann Rekuc að velli. Snemma í skákinni var félag miðaldra titilhafa að missa sig yfir því að Hannes væri að tefla eitthvað rúlluskautaafbrigði í Catalan gegn ungum skákmanni. Ákvarðanatöku Hannesar var blótað í sand og ösku. Á daginn kom þó sem betur fer að skákum hafði verið víxlað í útsendingunni og þetta var bara alls ekki skák Hannesar!
Hér er ekki skák Hannesar sem varð þess valdandi að fyrrverandi ritstjóri ákveðins miðils hefur farið fram á miskabætur við mótshaldara í Póllandi!
Raunveruleg skák Hannesar var öllu skynsamlegri. Hannes tefldi kan-afbrigðið gegn sikileyjarvörn og tók frumkvæðið í miðtaflinu og náði að nýta sína styrkleika í stöðulegri taflmennsku og staða hans flæddi vel. Fín skák hjá Nesa!

Hilmir fékk betra tafl í miðtaflinu en skiptamunsfórn Úkraínumannsins Andriy Palamarchuk (2110) var illskiljanleg. Hilmir sigldi vinningum heim með skiptamun yfir.

Josef hafði svart og upp kom hvasst afbrigði í Sveshnikov gegn Stefan Maltezeanu (2245). Josef var með teóríuna og hreinu og ef eitthvað var hann með betra tafl í lokastöðunni en stigahærri andstæðinur hans greinilega orðinn hræddur og bauð jafntefli sem Josef þáði
Vignir hefur eftir umferðina 5,5 vinning af 8 mögulegum og Hannes hefur 5 vinninga. Á eftir þeim koma Hilmir með 4,5 vinning og Josef 3,5 vinninga.
Í 9. umferð sem fram fer klukkan 13:00 á morgun mætir Vignir serbnesku landsliðskonunni Teodoru Injac (2410) og hefur hvítt, Hannes hefur líka hvítt og mætir Bojan Maksimovic (2531) sem er serbneskur stórmeistari. Hilmir hefur svart á tyrneskan IM Huseyin Can Agdelen (2405) og Josef hefur hvítt gegn pólskum FM Bartosz Przybylski (2249).
Að lokinni 9. umferð verður seinni frídagur mótsins og klárast svo EM um helgina.
Um mótið:
Evrópumót einstaklinga fer fram í Katowice í Póllandi 7-19. apríl en teflt er á hverjum degi en frídagar 11. og 17. apríl. Tefldar eru 11 umferðir um Evrópumeistaratitilinn og jafnframt sæti á Heimsbikarmótinu, mikið í húfi. Sætin eru eftirsótt þar sem Heimsbikarmótið er ávallt eitt vinsælasta mótið þegar það fer fram (annað hvert ár) og jafnframt getur það verið leið til að komast á Áskorendamótið (sem er nú í gangi).
Alls taka 501 skákmenn þátt á mótinu og eru íslensku keppendurnir fjórir. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2512) er númer 74 í stigaröðinni, GM Hannes Hlífar Stefánsson (2414) er númer 154 í stigaröðinni, IM Hilmir Freyr Heimisson (2297) er númer í 256 stigaröðinni og Josef Omarsson (2045) er númer 400 í stigaröðinni. Stigahæstur er Igor Kovalenko (2685) frá Úkraínu.
Íslensku keppendurnir eru (sjá myndband):

















