Það verður indverski stórmeistarainn Rameshbabu Vaishali sem mun skora á Heimsmeistara kvenna Ju Wenjun en hún vann í dag Áskorendamót kvenna á Kýpur. Úzbekinn Javokhir Sindarov tryggði sér sigurinn í gær í opnum flokki og lokaumferðin því bara formsatriði fyrir keppendur. Vaishali lagði Katerynu Lagno að velli í lokaumferðinni en á samt tíma náði Bibisara Assubayeva aðeins jafntefli með svörtu gegn samlöndu Vaishali, Divyu Deshmukh.
Opinn flokkur:
Lítið merkilegt í opna flokknum í lokaumferðinni. Giri tókst þó að kóróna ágætis mót og verða aðeins annar skákmaðurinn til að leggja Bluebaum að velli en hann hafi gert 12 jafntefli í 13 skákum fram að lokaumferðinni. Kannski ætlaði Bluebaum loksins að þenja sig aðeins og láta til sín taka en hann endaði á að telja kallana eitthvað vitlaust.
Caruana vann einnig sína skák gegn Esipenko með svörtu í sikileyjarvörn. Eins og Bluebaum ákvað Esipenko að þenja sig en strandaði í sókninni.

Sindarov kláraði með 10 vinninga (+6) sem er met í 14 umferða allir við alla áskorendamóti. Giri var annar með 8,5 (+3), gott mót en vitlaust ár fyrir þennan árangur!
Standings | After Round 14 | FIDE Candidates 2026
🇺🇿 Javokhir Sindarov wins the FIDE Candidates with a score of 10/14! 🔥#FIDECandidates #FIDEWomensCandidates #Chess #FIDE pic.twitter.com/56SNxobc9z
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 15, 2026
Kvennaflokkur:
Spennan var svo sannarlega til staðar fyrir lokaumferðina í kvennaflokki. Vaishali stóð e.t.v. best að vígi með hvítu mennina gegn Lagno á meðan að Bibisara með jafn marga vinninga hafði svart gegn Deshmuk. Zhu Jiner varð að treysta á hagstæð úrslit hálfum vinningi á eftir héldu áfram þvílík spenna! Fyrir umferðina voru Vaishali og Zhu Jiner efsta og jafnar en Bibisara og Muzychuk hálfum vinningi á eftir og með svart gegn Anna Muzychuk.
Desmukh- Bibisara
Bibisara reyndi eftir fremsta megni að búa til ójafnvægi með svörtu en fékk ekki nægjanleg færi. Ef eitthvað er var Bibisara heppin því Desmukh átti nánast rakinn vinning á einum stað en missti af sínum séns. Jafntefli niðurstaðan og þurfti Bibisara nú að treysta á Lagno sem var í erfiðri stöðu.
Vaishali hafði hvítt gegn Lagno og valdi Lagno glæfralegan dreka í þessari skák. Smá spurningarmerki sem má ef til vill setja við þetta byrjanaval, Vaishali hékk á umframpeði og sókn Lagno rann smátt og smátt út í sandinn. Hvítur er með góðan +1 eftir 15 leiki og svo fórnar Lagno sig bara eiginlega í hel þegar allt er að renna út í sandinn. Slöpp skák hjá Lagno.
Vaishali þó væntanlega alveg sama. Óvænt úrslit svo sannarlega, báðir indversku stórmeistararnir voru einu keppendurnir í kvennaflokki undir 2500 elóstigum og heilt yfir var ekkert sem var einstaklega sannfærandi við framgöngu Vaishali. Ritstjórn hefur ekki mikla trú á möguleikum hennar gegn Ju Wenjun þegar þar að kemur.
Sigurvegarinn, Vaishali endaði með 8,5 vinning og endaði hálfum vinningi á undan Bibisara og Zhu Jiner og Goryachkina hálfum vinningi þar á eftir. Mótið einkenndist af miklum sveiflum, allir að vinna alla, mikið um mistök og enginn keppandi sem bar af.
Úrslit dagsins:
Round 14 | Results | FIDE Candidates & Women’s Candidates 2026
The FIDE Candidates & Women’s Candidates 2026 comes to an end.
#FIDECandidates #FIDEWomensCandidates #FIDE #Chess pic.twitter.com/flfHTCcwsu
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 15, 2026
Staðan:
Standings | After Round 14 | FIDE Women’s Candidates 2026
🇮🇳 Vaishali Rameshbabu wins the FIDE Women’s Candidates with a score of 8.5/14! 🔥#FIDECandidates #FIDEWomensCandidates #Chess #FIDE pic.twitter.com/LLPPEzGPg0
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 15, 2026
Tenglar:
Um mótið:
Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!
Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano Caruana, Hikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei Yi, Praggnanandhaa R, Javokhir Sindarov, Andrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.
Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu Jiner, Tan Zhongyi, Aleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju Wenjun. Anna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.

















