Landsliðsmaðurinn og alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson náði góðu jafntefli gegn sterkum stórmeistara, Evgeny Romanov í fimmtu umferð á opna Tælenska, alþjóðlegu móti í Bangkok. Dagur hefur þrjá og hálfan vinning að loknum fimm umferðum. Landsliðskonan og FIDE-meistari kvenna Hallgerður Þorsteinsdóttir vann sína skák, enn einu sinni gegn erfiðum ungum indverskum andstæðingi.

Dagur hafði svart gegn Evgeny Romanov (2576) sem teflir fyrir Makedóníu en þjálfaði um árabil í Noregi meðal annars. Dagur tefldi byrjunina af öryggi, leysti öll sín vandamál og stóð örnina af stakri prýði. Romanov hafði úr engu að moða, með riddara gegn biskup í endatafli og þrjú peð öll á kóngsvæng. Dagur var öryggið uppmálað allan tímann og jafnteflið öruggt.
Hallgerður hafði svart gegn ungum U18 Indverja Kollipara, Divyasree (1885) en ungu Indverjarnir eru yfirleitt erfiðir andstæðingar. Kollipara með hvítt tefldi afbrigði sem mælt er með í bók Ntirlis. Hvítur fær fína stöðu en Halla hélt ró sinni, hefur orðið mjög góða reynslu í caro-kann strúktúrum. Halla með svart fékk þegar leið á fínan reit á d5 og pressu á d4 peðið auk þess sem kóngsstaðan var furðu örugg. Indverjinn missti peð og endataflið vannst á svart. Fínn sigur.
Í sjöttu umferð sem fram fer á morgun hefur Dagur hvítt gegn jú…U18 Indverja, Bijesh Devnath (1929). Hallgerður mætir enn einum Indverjanum Bedi Sunny (1897) en þessi er þó kominn vel yfir fermingaraldurinn! Færi í þessari umferð að styrkja stöðu Íslendingana á mótinu.
- Heimasíða mótsins
- Skákir á lichess (24 efstu borð)
- Úrslit á chess-results
- Myndasíða mótsins
Um mótið:
241 skákmaður tekur þátt í A-flokki á Bangkok Open. Dagur er númer 45 í stigaröðinni en Hallgerður 127. Stigahæstur keppenda er „Lókurinn“ Loek van Wely en þekktastur keppenda og sá sem hefur oftast unnið mótið er önnur goðsögn, Nigel Short. Tefld er ein skák á dag, níu dagar.















