Reykjavíkurmótið í skólaskák fór fram á mánudaginn, svæðismót Reykjavíkur og Seltjarnarness fyrir landsmótið í skólaskák. Mótið var afar fjölmennt og verður fyrirkomulag þess e.t.v endurskoðað að ári vegna þessa, til dæmis að halda yngsta flokkinn ekki sama dag og eldri flokkar, og fjölga umferðum.
Það tóku 51 þátt í flokki 1.-4. bekkjar, úr tólf grunnskólum Reykjavíkur. Eftir umferðirnar sjö var Eiður Jökulsson einn efstur með 6.5 vinning. Eiður er í 4. bekk Ártúnsskóla. Í öðru sæti varð Helgi Fannar Óðinsson, í 2. bekk Norðlingaskóla með sex vinninga, og í 3. sæti varð Garðar Hrafn Einarsson í 4. bekk Ártúnsskóla, líka með sex vinninga. Það verða því tveir fulltrúar Ártúnsskóla í landsmótinu! Einnig er eftirtektarvert að nemandi í 2. bekk lendi í verðlaunasæti í mótinu!
1.-4. bekkur á chess-results.

Í flokki 5.-7. bekkjar tóku þátt 32 úr 11 skólum Reykjavíkur. Einn efstur varð Haukur Víðis Leósson, 6. bekk Hlíðaskóla, með 6.5 vinning. Haukur ver titilinn frá því í fyrra. Næstur varð Pétur Úlfar Ernisson, 5. bekk Langholtsskóla með sex vinninga og í þriðja sæti Jónatan Leó Daðason, 6. bekk Hvassaleitisskóla með sex vinninga.
5.-7. bekkur á chess-results.

Flokkur 8.-10. bekkjar er alltaf fámennastur, en í ár tóku 12 þátt. Theódór Eiríksson, 10. bekk Foldaskóla, vann öruggan sigur með fullu húsi og var í sérflokki. Næstir með fimm vinninga, urðu Emil Finnsson Fenger úr 8. bekk Hagaskóla og Ýmir Nói Jóhannesson úr 10. bekk Réttarholtsskóla, báðir með fimm vinninga.
Flokkur 8.-10. bekkjar á chess-results.

Myndir frá Tómasi Tandra og Jökli Úlfarssyni.




















