Íslandsmót grunnskólasveita 8-10.bekkur fór fram þann 19.apríl í Rimaskóla. Að þessu sinni voru skráðar 17 sveitir til leiks og tefldar voru sjö umferðir. Fyrir fram var sveit Lindaskóla í öðrum klassa og sýndi í mótinu að það var innistæða fyrir því.
Lindaskóli vann allar sínar viðureignir og endaði vel yfir næstu sveitum með 23 vinninga. Hvaleyraskóli átti einnig gott mót og endaði með 18½. Rimaskóli A-sveit endaði með 17 vinninga og náði þriðja sætinu hálfum vinningi á undan Langholtsskóla.
Einnig voru veitt önnur verðlaun í mótinu. Efsta b-sveitin var B-sveit Víðisstaðaskóla með 13½. Efsta landsbyggðarsveitin var Flúðaskóli með 13 vinninga.