Alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson er efstur á Boðsmóti TR sem fram fer núna um helgina. Mótið er með breyttu sniði en tefldir eru tveir lokaðir 6 manna flokkar, allir við alla. Allar skákirnar eru kappskákir. Hilmir hefur fullt hús eftir þrjár umferðir og sama má segja um Ingvar Wu Skarphéðinsson í B-flokki.

Hilmir átti skemmtilegan leik gegn Josef í 3. umferð

Hér skellti Hilmir hróknum á þrælvaldaða reitinn 22.He8!? og hvítur stendur til vinnings. Ekki besti tölvuleikurinn en svo sannarlega flottasti leikurinn.

Mótinu lýkur á morgun en þá verða fjórða og fimmta umferð tefld.

- Auglýsing -