Öðrum keppnisdegi, á Norðurlandamóti stúlkna í skák í Noregi, lauk í gær.
Mótið hefur farið vel fram og aðstaða á keppnisstað til mikillar fyrirmyndar, bæði fyrir keppendur og fylgdarfólk. Teflt er í Vestby Kulturkvartal sem er einhvers konar menningarmiðstöð heimamanna.
Ísland á næstflesta keppendur allra þjóða á mótinu og hefur íslenski hópurinn verið nokkuð áberandi í sínum bláu landsliðstreyjum.
B-flokkur
Sigrún Tara hefur 2 vinninga, Guðrún Fanney 1,5, Emilía Embla 1 vinning en Emilía S. er enn ekki komin á blað.
Sigrún Tara vann mikinn seiglusigur með svörtu mönnunum í 2. umferð gegn Chloe Elisabeth Homtako (1606) frá Noregi.

C-flokkur
Harpa Hrafney hefur byrjað vel og hefur 2,5 vinning. Hún er í 2.-5. sæti að lokinni þriðju umferð. Halldóra hefur 1,5 vinning, Likhitha 1 vinning, Katrín Ósk hálfan vinning eins og Miroslava en Emilía Klara á enn eftir að komast á blað.
Harpa Hrafney tefldi mjög vel heppnaða skák í 3. umferð, gegn hinni dönsku Isabella Chen (1824), þar sem leppanir voru í aðalhlutverki.

Mótinu lýkur í dag með tveimur umferðum. Sýnt er beint frá öllum skákum og má nálgast tengla á útsendinguna hér að neðan.
Hinar vönduðu ljósmyndir frá mótinu tók Tómas Tandri Jóhannsson.
—
Ísland á tíu keppendur á Norðurlandamóti stúlkna í skák sem fer fram í Vestby í Noregi 24.-26. apríl.
Teflt er í þremur flokkum á mótinu, A-flokki (u20), B-flokki (u16) og C-flokki (u13). Ísland á einungis fulltrúa í B- og C-flokki.
B-flokkur (16 ára og yngri)
Guðrún Fanney Briem (2032)
Emilía Embla B. Berglindardóttir (1622)
Sigrún Tara Sigurðardóttir (1483)
Emilía Sigurðardóttir (1464)
C-flokkur (13 ára og yngri)
Harpa Hrafney Karlsdóttir (1585)
Halldóra Jónsdóttir (1568)
Katrín Ósk Tómasdóttir (1445)
Miroslava Skibina (1443)
Emilía Klara Tómasdóttir (0)
Likhitha Sri Sathiyaraj (0)
Þjálfari hópsins er Björn Ívar Karlsson
Tefldar verða fimm umferðir með umhugsunartímanum 90+30.
Dagskrá mótsins (að íslenskum tíma):
Föstudagur 24. apríl
16:30 – 1. umferð
Laugardagur 25. apríl
08:00 – 2. umferð
13:00 – 3. umferð
Sunnudagur 26. apríl
07:00 – 4. umferð
12:00 – 5. umferð
- Keppendalistar: B-flokkur | C-flokkur
- Bein útsending


















