Íslenka liðið í 65+ flokkunum á Heimsmeistaramóti öldungasveita í Durres í Albaníu er ennþá í efsta sæti að lokinni sjöundu umferð sem fram fór í dag. Tvær umferðir eru eftir og lokaspretturinn æsispennandi. Íslenska liðið í 50+ flokknum vann sína viðureign og á einhverja möguleika á því að komast á verðlaunapall með góðum endaspretti. Vestfirska liðið gerði jafntefli í sinni viðureign.
65+ flokkur
Áskell hvíldi í dag en liðið mætti Slóvökum með Ftacnik í broddi fylkingar.

Helgi hafði hvítt á fyrsta borði gegn hinum margreynda teóríuhesti Lubomir Ftacnik. Upp kom broddgöltur og Helgi bauð jafntefli í hnífjöfnu miðtafli, líklegast skynsamleg ákvörðun.
Margeir hafði svart gegn alþjóðlega meistarnum Motuz. Slóvakinn stóð ívið betur þegar Margeir kom með jafnteflisboð…Motuz þáði þá „kröfu“.
Jón L. náði mikilvægum sigri gegn alþjóðlega meistaranum Gazik. Jón tefldi hnitmiðað gegn Philidor vörn Slóvakans og taktískar andstæðings hans til að einfalda taflið skiluðu umframpeði á hvítt. Þrátt fyir að umframpeðið væri tvípeð hafði Jón mikið vald á miðborðinu og rými sem tryggði honum átakalítinn sigur.
Þorsteinn hafði svart gegn alþjóðlega meistaranum Petran. Þorsteinn lenti í klemmu og líklega var …b5 framrás svarts ekki stöðulega góð. Þorsteinn lenti í erfiðri vörn með passífan riddara á b8 og Petran tefldi framhaldið mjög vel og náði að jafna viðureignina fyrir Slóvakana.
Úrslit:
Niðurstaðan 2-2 jafntefli, sleppur til en hefði verið fínt að ná í 2 stig í þessari viðureign!
Íslenska liðið er enn í efsta sæti á oddastigum en eftir sem áður þá er þétt á toppnum…og mögulega kalt!
Í áttundu umferð mætir íslenska sveitin liði FIDE (Rússar). Þétt sveit sem hefur enn ekki tapað einni einustu skák. Ljóst er að eins jafnt og mótið er að líklegast þarf lágmark einn sigur og eitt jafntefli til að komast á pall. Allavega tvær lykilumferðir framundan og byrjum á Rússunum!
50+ flokkur

Lið Íslands í 50+ heldur áfram að klífa upp töfluna, lögðu Skota að velli í gær og en fengu aðeins erfiðari mótspyrnu í dag.
Ágúst Sindri hvíldi hjá 50+ liðinu í dag.

Jóhann mætti Agdestein á efsta borði. Eftir caro-kann vörn lenti Jóhann í smá klemmu.
Hér átti Norðmaðurinn 15…Bd4 16.Rc3 Dc7! og tvöfalda hótunin á c3 og h2 er leiðinlegt. Simen missti hinsvegar af þessu, lék 15…Hh5!? og missti svo þráðinn í miðtaflinu. Jóhann gekk á lagið og nýtti sér að í öllum látunum hafði Simen ekki náð að sinna þeirri meginskyldu skákmanna að hrókera!
Svartu gafst upp þar sem 26…b6 er svarað með 27.Hxf5 og svo Re6+. Skemmtilegt að fxg5 er ólöglegur leikur, Agdestein vel leppaður í bak og fyrir!
Á öðru borði virtist Atle Grönn staðráðinn í að drepa taflið niður gegn Þresti og tókst það.
Karl Þorsteins hélt áfram sínum góða árangri og pakka saman Norðmanninum Dahl. Karl hefur skilað 5 vinningum úr 6 skákum og verið þéttur í sinni taflmennsku.
Rúnar Sigurpálsson lagði einnig sinn andstæðing með svörtu í Philidor, var klárlega sterkari skákmaðurinn í dag. Upp kom reyndar skemmtilegur séns sem Rúnar missti af.
Hér er 27…Rxg3!! stórskemmtileg taktík. Ef biskup tekur á g3 þá kemur leppun með hróknum á g2. Ef hinsvegar 28.Kxg3 Dg5+ 29.Kh2 þá á svartur skemmtilegt sko 29…Hd1 og máthótunun á g1 vinnur töluvert af liði!
Úrslitin því 3.5-0.5 sem verða að teljast ansi góð!

Vestfirðingasveitin mætti England-3, Ledger sveitinni.
Guðmundur lenti í mikilli stöðulegri klemmu en náði að berjast ansi lengi miðað við hvað staðan var erfið.

Magnús Pálmi þurfti að verjast erfiðu miðtafli og endatafli með svörtu en sýndi öryggi í vörninni og tryggði jafnteflið.

Sigur Halldórs Grétars vóg þungt í dag. Halldór hafði hvítt og í miðtaflinu taldi Ledger mögulega að hann hefði mátsókn eða næg færi gegn kóngi hvíts og skildi hrók eftir í uppnámi. Það reyndist ekki rétt og Halldór vann úr liðsyfirburðunum.
Loks gerði Guðmundur Halldórsson jafntefli með svörtu og ef einhver var nær því að fá færi í skákinni var það hann.
Úrslit:
Staðan:
Bandaríkjamenn enn efstir en Ítalía búnir að ná þeim að vinningum. Ísland hoppar upp í 4. sætið úr því 7. en Vestfirðir detta niður í 14. sætið.
Í áttundu umferð mætir Ísland liði Ítalíu og höfum við svart, Vestfirðir mæta spænskri sveit.
- Heimasíða mótsins
- Mótið á chess-results 50+ | 65+
- Skákir á lichess 50+ | 65+
Um mótið:
Heimsmeistaramót öldungasveita fer fram í Durres í Albaníu 19-28. apríl. Tefldar eru 9 umferðir. Ísland teflir fram þriðju stigahæstu sveitinni í flokki 65+ og fimmtu stigahæstu sveitina í flokki 50+. Sveit eingöngu skipuð Vestfirðingum í flokki 50+ er svo ellefta stigahæsta sveitin.
Sveit Íslands í 65+
GM Helgi Ólafsson – 2439
GM Margeir Pétursson – 2387
GM Jón L. Árnason – 2407
FM Þorsteinn Þorsteinsson – 2220
IM Áskell Örn Kárason – 2121
Sveit Íslands í 50+ skipa
GM Jóhann Hjartarson – 2466
GM Þröstur Þórhallsson – 2392
IM Karl Þorsteins – 2404
FM Ágúst S. Karlsson – 2224
FM Rúnar Sigurpálsson – 2236
Sveit Vestfirðinga er skipuð:
FM Guðmundur Gíslason – 2251
CM Magnús P. Örnólfsson – 2163
FM Halldór Grétar Einarsson – 2173
CM Guðmundur Halldórsson – 2105
















