Helgina 1-3 maí fór fram bikarsyrpumót hjá Taflfélagi Reykjavíkur. Þetta var fimmta og jafnframt lokamótið í mótaröðinni á vorönninni og einhverju leiti lok starfsársins hjá Taflfélaginu. Mótin hafa áfram haldið að festa sig í sessi og eru áfram í vexti. Alltaf gaman að fylgjast með og sjá framfarir keppenda milli móta.
Anh Hai Tran sigurvegari fyrri móta tók fljótt forystu ásamt Jóel Helmer. Leiddu þeir mótið allt fram í fimmtu umferð þegar þeir mættust. Eftir að hafa fengið yfirburðastöðu með hvítu mönnunum skiptist upp á nær öllu og þurfti Jóel að hafa fyrir því að vinna stöðuna. Anh hai varðist vel og skákin endaði í lokin á að þeir sömdu um jafntefli.
Í lokaumferðinni unnu Anh og Jóel sínar skákir og enduðu báðir jafnir með 6½ vinning. Þurfti að koma til stigaútreiknings og reyndist Jóel sigurvegari á oddastigum.

Í þriðja sæti var Jónatan Leó Daðason einn með 5½ vinning.
Í stúlkna flokki var Katrín Ósk efst með 5.vinninga. Mjög margar komu síðan með 4 vinninga en eftir stiga útreikning fékk Likhithasri annað sæti og það Praanvi þriðja.
Að lokum var tekið saman hver var með besta árangur úr fjórum mótum mótaraðarinnar. Ekki þurfti að reikna mikið til að komast að því að sigurvegari allra nema eins mót var Anh Hai Tran sem vann með yfirburðum.

🥇Jóel Helmer Tobiasson 6½ (30,5)
🥈Anh Hai Tran 6½ (29)
🥉Jónatan Leó Daðason 5½

🥇Katrin Ósk Tómasdóttir 5
🥈Likhithasri Sathiyaraj 4
🥉Praanvi Kandukuri 4


Taflfélag Reykjavíkur vill þakka keppendum fyrir þátttöku á mótinu og vonast til að sjá sem flesta á Sumarsyrpumótaröðinni sem hefst í júní.
Hægt er að sjá lokastöðu mótsins á úrslitasíðu mótsins á Chess-results: Friðrikssyrpa T.R V
Hægt er að sjá myndir frá mótinu á myndasíðu Skáksambandsins Friðrikssyrpa V 2026 | Flickr















