Áskrifendur að tímaritinu Skák hafa fengið reikning og búið er að póstleggja fyrir þá sem vilja fá sent heim. Auk þess er vakin athygli á því að þeir fá líka sent heim sem búa úti á landi og eru vanir að sækja á Íslandsmóti skákfélaga, þar sem blaðið kom út eftir seinni hlutann.

Hægt er að sækja blaðið í Taflfélagi Reykjavíkur, Faxafeni 12, meðan þar eru skákmót. Til dæmis á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum.

Einnig mun ritstjóri heimsækja Skákdeild KR, Taflfélag Garðabæjar og Æsi, með blöðin.

Sama verð, sömu gæði. 60 stappfullar blaðsíður af skákefni, þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Höfundar eru úr röðum stórmeistara, alþjóðlegra meistara, Fide-meistara, og loks – algjörra meistara!

 

Verðskrá: 3500kr hefðbundin áskrift, 4500kr ásamt heimsendingu. (1000 króna póstburðargjald bætist við). 7000kr. styrktarlína.

Takk fyrir að halda útgáfunni gangandi kæru áskrifendur, og takk fyrir skrifin kæru höfundar!

Gerast áskrifandi

13. maí 2026, með góðri kveðju,

Gauti Páll Jónsson, ritstjóri

- Auglýsing -