Fimm íslenskir skákmenn eru skráðir til leiks á Kronborg Open í Danmörku. Mótið er reyndar ekki klassískt opið mót þar sem teflt er í ótal flokkum, frá GM flokkum niður í meistaragrúppur og menn tefla við skákmenn af álíkum styrkleika. IM Dagur Ragnarsson tekur þátt í IM-flokki, Íslandsmeistarinn Hilmir Freyr skráði sig seint til leiks og styrkir WIM-grúppuna, Birkissynir í Master 1 flokki og Jóhann Ragnarsson í Master 10. Tvær efstu grúppurnar af þessum hófu taflmennsku í dag en hinar á morgun!
Teflt er stíft, tvær umferðir á dag að jafnaði og voru tvær fyrstu umferðirnar tefldar í dag. Eitthvað klúður var á beinum útsendingum í fyrstu umferð, t.d. kolvitlaus skák og úrslit hjá Hilmi Frey.
Dagur var þó beint í 2. umferð en þar lagði hann þýskan FM í baráttuskák þar sem Dagur stóð lengi höllum fæti en náði að rétta úr kútnum.
Dagur tapaði fyrri skákinni og hefur 1 af 2.
Hilmir Freyr heldur áfram sigurgöngu sinni og vann báðar skákir sínar í dag gegn dönskum skákkonum með um 2000 elóstig. Hilmir hefur nú unnið 16 af síðustu 17 kappskákum sínum, aðeins Vignir Vatnar hefur stöðvað þessa næstum samfelldu sigurgöngu!
Þar sem færri skákir eru í Masters grúppunum hefja þeir taflmennsku á morgun!
Skákir beint:
Beinir tenglar á úrslitsíðu mótsins
- IM-grúppa (Dagur)
- WIM-grúppa (Hilmir)
- Masters-1 (Björn Hólm og Bárður Örn)
- Masters-10 (Jóhann)


















