Þriðja umferð var tefld í dag á HM ungmenna en mótið fer fram á Montesilvano á Ítalíu. Landsliðskonan Guðrún Fanney Briem (2026) tapaði sinni fyrstu skák í stúlknaflokki U16 en Birkir Hallmundarson (2007) kvittaði fyrir tapið í gær og vann sína skák. Íslenskur keppendurnir hafa báðir 2 vinninga af 3 mögulegum.

Guðrún hafði hvítt og mætti WFM Uliana Dudkina (2168) rússneskri stelpu. Guðrún beitti d3 afbrigðinu af VignirVatnar.is sem hafði að einhverju leiti tilætluð áhrif þar sem sú rússneska notaði strax tímann í byrjuninni. Stöðuna er hinsvegar erfitt að tefla og lenti Guðrún í vandræðum með að klára liðsskipan og loks þegar hún náði að hróka stöðu svörtu mennirnir vel til sóknar á kóngsvængnum og lítið hægt að gera.
Guðrún Fanney hefur nú 2 vinninga af 3 mögulegum og mætir indverskri stelpu Myra Singh (1808) en Indverjarnir eru jafnan erfiðir andstæðingar.
Guðrún er númer 28 í stigaröð af 106 keppendum.

Birkir hafði svart í sinni skák gegn Barsbek Kazakov (1701) frá Kyrgyztan. Birkir fékk verra tafl eftir byrjunina og þurfti að bíða aðeins í skotgröfunum en ekki of lengi. Birkir náði stórsókn á f-línunni og loks skemmtilegum „Fréttablaðsleik“ til að klára dæmið.
25…Bh3! skemmtilegur leikur og þungu mennirnir klára dæmið.
Birkir hefur 2 vinninga af 3 og mætir írskum skákmanni, Arun Nitish (2177) í næstu umferð en sá hefur teflt nokkrum sinnum á Reykjavik Open og á ChessMates.
Birkir er númer 68 í styrkleikaröðinni af 151 keppanda í U14 flokknum.
Svipmyndir úr skáksal:
- Heimasíða mótsins
- Instagram síða World Youth
- Skákir á lichess: G16 | U14
- Chess-results: G16 | U14

















