Næst síðasta umferðina fór fram á HM ungmenna en mótið fer fram á Montesilvano á Ítalíu. Íslensku keppendurnir áttu ekki góðan dag og töpuðust báðar skákirnar, hjá Guðrún Fanney Briem (2026) í U16 stúlkna og hjá Birki Hallmundarsyni (2007) í U14 flokknum.

Guðrún hafði svart í sinni skák og mætti stelpu frá Litháen Auguste OVCINIKOVA (1733). Guðrún lenti í vandræðum í byrjuninni og fékk krefjandi stöðu. Hún náði að redda sér út úr því, fann mjög góða og krefjandi leiki en því miður fór of mikill tími í að bjarga stöðunni og reyndist tímahrakið of erfitt og staðan enn krefjandi. Tap því niðurstaðan.

Guðrún hefur 3,5 vinning af 10 fyrir lokaumferðina.

Birkir hafði hvítt gegn skákmanni frá Sri Lanka CM Wijerathna (2165). Tefldur var skoskur leikur og missti Birkir aðeins tökin snemma í miðtaflinu, átti möguleika á fínum leik en tapaði í staðinn peði og reyndist það of mikið þegar á leið.

Birkir hefur 5,5 vinning af 10 fyrir lokaumferðina.

Birkir er númer 68 í styrkleikaröðinni af 151 keppanda í U14 flokknum.

- Auglýsing -