Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson og alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson hófu í dag keppni á alþjóðlegu móti á Korsíku, Porticcio Open. Alls taka rúmlega 50 skákmenn þátt í efsta flokknum sem Guðmundur og Björn eru skráðir til leiks í. Guðmundur er númer 9 í stigaröðinni en Björn númer 11. Báðir fengu þeir stigalægri andstæðinga í fyrstu umferðinni og lögðu þá að velli.

 

 

Guðmundur Kjartansson að tafli (Mynd: Ómar Óskarsson)

Guðmundur mætti heimamanni og var fljótur að fá þægilegt tafl eftir byrjunina með svörtu. Taktíkin flæddi vel í svörtu stöðunni og Guðmundur vann þægilegan sigur og vonandi að Guðmundur komi sér í gang eftir erfið mót undanfarið.

Björn að tafli á Reykjavíkurskákmótinu 2025

Björn hafði líka svart og mætti heimamanni á svipuðu stigabili og andstæðingur Guðmundar. Björn vann peð með bellibrögðum snemma og virtist stefna í auðveldan sigur eins og hjá Guðmundi. Það kom hinsvegar eitthvað hikst í „Húninn“ og Frakkinn átti sína sénsa á köflum en Björn náði aftur tökum á stöðunni og kláraði svo með nettu „Fréttablaðs-máti“

Á morgun er tvöföld umferð hjá þeim félögum og því um að gera að safna kröftum í kvöldsólinni á Korsíku!

- Auglýsing -