Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli í sjöundu umferð á opna mótinu í Valencia á Spáni: VII Open Internacional València Cuna del Ajedrez. Brasilískur andstæðingur hans virtist vel undirbúinn og Hannes komst lítið áleiðis og jafntefli samið í kringum 20. leik.

Hannes hafði hvítt og beitt andstæðingurinn …a6 afbrigði í drottningarbragði. Hannes fann eins og áður sagði ekki krefjandi leiðir og taflið hnífjafnt þegar samið var.

Hannes hefur 4,5 vinninga af 7 mögulegum og sigurmöguleikar á mótinu orðnir litlir.

Áttunda umferð er á morgun en þar hefur Hannes svart gegn pólska alþjóðlega meistaranum Radoslaw Barski (2344).

Alls taka 141 skákmaður þátt á mótinu og þar af fjöldi stórmeistara. Hannes er númer 13 í stigaröð keppenda. Tefld er ein umferð á daga, níu daga mót!

- Auglýsing -