Það er ekki bara Gauti Páll sem situr að tafli erlendis þessa dagana. Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2395) tekur þátt í alþjóðlegu móti í Sussex í Englandi. Rétt eins og í Poznan er þremur umferðum lokið. Guðmundur hefur hlotið 1½ vinning. Unnið, gert jafntefli og tapað.

Mótið í Sussex er hins vegar „nýi skólinn“. Sex umferðir á níu dögum.

Alls taka, 62 skákmenn og þar af fimm stórmeistarar, þátt í flokki Gumma sem er fimmti stigahæsti keppandinn. Meðal keppenda eru stórmeistarnir Simon Williams (2455) og Oleg Korneev (2433).

- Auglýsing -