Kristján Örn Elíasson stjórnar vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í gær settist FIDE-meistarinn Sigurbjörn Björnsson, niður við skákborðið í Skipholtinu.
Í kynningu um þáttinn segir:
Þeir félagar leitast við að svara einni sígildustu spurningu skáksögunnar: Hver er besti skákmaður allra tíma? Að þeirra mati koma einkum þrír fyrrverandi heimsmeistarar til greina: Bobby Fischer, Garry Kasparov og Magnus Carlsen.
Þeir ræða einnig aðra stórmeistara sem eiga tilkall til þess að vera meðal þeirra bestu, svo sem Anatolí Karpov, Emanuel Lasker, José Raúl Capablanca, Alexander Alekhine, Mikhail Botvinnik, Viswanathan Anand, Paul Morphy og Mikhail Tal. Þá kemur Judit Polgár, án efa sterkasta skákkona sögunnar, einnig við sögu.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.














