Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2395) átti góðan gærdag í 4.-5. umferð alþjóðlega mótsins í Sussex í Englandi. Hann vann báðar sínar skákir gegn enskum skákmönnum. Í fyrri skák dagsins vann hann Arthur Kendall (2045) og í þeirri síðari vann hann alþjóðlega meistarann Graeme Buckley (2261).

Gummi hefur 3½ vinning og er í 5.-11 sæti – hálfum vinningi á eftir efstu mönnum. Ekki liggur fyrir pörun í sjöttu umferð sem hefst kl. 17.
Alls taka, 62 skákmenn og þar af fimm stórmeistarar, þátt í flokki Gumma sem er fimmti stigahæsti keppandinn. Meðal keppenda eru stórmeistarnir Simon Williams (2455) og Oleg Korneev (2433). Mótið fer fram 21.-26. júlí.
- Auglýsing -
















